HönnunarÞing 2026 fór fram dagana 25.-26. september á Húsavík en hátíðin var nú haldin í fjórða sinn. Nemendur í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands tóku þátt í hátíðinni þar sem áhersla er lögð á hönnun, nýsköpun og orku. Dagskráin var fjölbreytt og saman stóð af fyrirlestrum, kynningum og viðburðum víðsvegar um bæinn. Á meðan á dvölinni stóð unnu nemendur að eigin verkefnum og nýttu tækifærið til að sækja fyrirlestra og kynningar. Kristín Malmquist, nemandi á öðru ári í vöruhönnun, segir hátíðina hafa farið vel fram. „Okkur nemendu bauðst að sækja ýmsa fyrirlestra og viðburði en vorum samhliða því að sinna okkar eigin verkefnum.“  

„Say Less, Do More“ 

Afrakstur vöruhönnunarnema var sýningin Say Less, Do More sem sett var upp í Hvalasafninu á Húsavík. Þar var meðal annars rannsóknarvinna hópanna til sýnis sem þróaðist jafnóðum meðan á dvölinni stóð. Þá nýttu nemendur ferðina til þess að kynnast samfélaginu á Húsavík sem leiddi hópinn meðal annars að Hvammi, dvalarheimili aldraðra, þar sem að sögn Kristínar áttu sér stað áhugaverðar umræður um listir og hönnun. „Á Hönnunarþinginu gafst tækifæri til þess að kynnast fólki á sömu bylgjulengd og maður sjálfur auk þess sem verkefnið okkar var að stórum hluta byggt á samtali við íbúana á Húsavík.“ Dvölin snerist því ekki eingöngu um lokaafraksturinn heldur einnig um samtöl, rannsóknir og tengsl.

Nýtt umhverfi og ný tengsl 

Kolbeinn Tumi, nemandi á fyrsta ári í vöruhönnun, segir verkefnavinnuna hafa verið í forgrunni en að samfélagið á Húsavík og stemningin í bænum í aðdraganda HönnunarÞings hafi skipt miklu máli. „Mér finnst ég hafa lært heilan helling af viðverunni á Húsavík bæði af fyrirlesurum en einnig af leiðbeinendum sem voru á svæðinu og alltaf til í að veita hjálparhönd,“ segir Kolbeinn Tumi. Hann segir jafnframt að það hafi haft áhrif að vinna í nýju umhverfi í návist samnemenda og annarra fagaðila: „Að vera innan um samnemendur og aðra fagaðila í tæpa viku í nýju umhverfi hafi bæði samstillt okkur sem nemendahópur en einnig þróað okkur sem hönnuði.“ Kristín Malmquist tekur í sama streng og segir dvölina hafa gefið nemendum færi á að eyða meiri tíma saman og styrkja samheldni hópsins. Hún lýsir ferðinni sem „góðri lífsreynslu“ sem fari í reynslu- og minnisbankann. 

Við þökkum íbúum ogsamfélaginu á Húsavík fyrir frábærar móttökur og hvetjum öll til þess að sækja HönnunarÞing að ári. Hér að neðan má sjá myndefni frá ferðinni.