Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í arkitektúrdeild, hönnunardeild og myndlistardeild Listaháskóla Íslands.
Hver nemandi nálgast samtímann frá sínu sjónarhorni en í verkum á sýningunni má greina vangaveltur umbreytt miðlalandslag, handverkshefð, samband líkama og fatnaðar, samkennd með skordýrum, tækifæri fólgin í smáiðnaði, söfnunaráráttu, verbúðir, berskjöldun og yfirþyrmandi stofnanir.
Dagskrá viðburða og gjörninga sem verða á safninu á meðan á sýningu stendur verður auglýst þegar nær dregur.
Sýningastjórar
Anna Karlsdóttir og Jan Dobrowolski, arkitektúr
Arnar Ásgeirsson, myndlist
Arnar Már Jónsson, fatahönnun
Björn Steinar Blumenstein, vöruhönnun
Hrefna Sigurðardóttir, grafísk hönnun
Leiðsögn sýningastjóra verður fimmtudaginn 14. maí. Nánari upplýsingar verða sett á viðburðinn þegar nær dregur.
Safnið er opið frá 10:00 til 17:00 föstudag til miðvikudags. Fimmtudaga er safnið opið frá 10:00-22:00.