Úps!

Sindri Snær Jónsson
Sviðshöfundabraut

Kjökrandi, kulnaðar, miðaldra, ófullnægðar, HVÍTAR konur … arnarefni … karlrembur … hamingjusamt kynlífskvöld … MORÐ á börnum fram að fæðingu … yfirgangssamir femínistar … ÚPS!

Hefur þú einhvern tímann rifist svo heiftarlega við einhvern að þú fáir fullnægingu?

ÚPS! er nýtt samsköpunar- og samsteypuverk í leikstjórn hins umdeilda og sprenghlægilega Sindra Snæs Jónssonar, en verkið er unnið út frá viðtali sem var útvarpað á Útvarpi sögu árið 2020. Þið viljið ekki missa af þessari bombu … komið og fáið það úr hlátri!

BÓKA MIÐA

Praktík:

Hvenær:
30. apríl kl. 19:00-20:10
3. maí kl. 18:00-19:10
4. maí kl. 18:00-19:10

Hvar:
Stofa L220, LHÍ Laugarnes
Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík
Sýningarrýmið er á annarri hæð skólans. Hægt er að nálgast það með því að fara inn bakdyramegin við skólann og inn um ganginn á móti heimasvæði sviðshöfunda. Haldið áfram, farið gegn um hurðina á endanum, framhjá klósettunum, og gangið inn á ganginn sem leiðir að heimasvæði dansara. Þar er stofa L220.

Aðstandendur:

Flytjendur:
Baldur Björnsson
Gúa Margrét Bjarnadóttir

Leikstjórn:
Sindri Snær Jónsson

Þakkir:
Arnþrúður Karlsdóttir og Viðar Guðjohnsen

Leiðbeinendur:
Anna María Tómasdóttir og Jónmundur Grétarsson