Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun 2026

Á sýningunni kynna nemendur BA útskriftarverkefni sín frá Listaháskóla Íslands. Lokaverkefni nemenda í fatahönnun er einstaklingsverkefni sem samanstendur af frjálsri rannsókn, hönnun og gerð á línu af tískufatnaði undir handleiðslu leiðbeinenda.

Tíu fatahönnuðir útskrifast af námsbrautinni að þessu sinni en það eru þau:

Bjørk Bregendahl

Fríða Björg Pétursdóttir

Hafdís Sól Jóhannsdóttir

Helgi Þorleifur Þórhallsson

Hulda Kristín Hauksdóttir

Kristrún Rut H. Antonsdóttir

Ólafía Elísabet Einarsdóttir

Rósa Marí Sigmarsdóttir

Stella Michiko Sigrún Delli Zuani

Sverrir Ingi Ingibergsson

Sýningarstjóri er Anna Clausen

Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun er hluti af viðamikilli dagskrá útskriftarhátíðar Listaháskóla Íslands. Verk útskriftarnema verða síðar til sýnis á útskriftarsýningu BA nema í hönnun og myndlist í Hafnarhúsi sem opnar 9. maí næstkomandi.