Dagsetning
6. maí 2025
Tími
20:00–21:00
Staðsetning
Flói Harpa
Deild
Hönnunardeild

Á sýningunni kynna nemendur BA útskriftarverkefni sín frá Listaháskóla Íslands. Lokaverkefni nemenda í fatahönnun er einstaklingsverkefni sem samanstendur af frjálsri rannsókn, hönnun og gerð á línu af tískufatnaði undir handleiðslu leiðbeinenda.

níu fatahönnuðir útskrifast af námsbrautinni að þessu sinni en það eru þau:

Arnar Freyr Hjartarson

Guðlín Theódórsdóttir

Hallgerður Thorlacius

Hannes Hreimur Arason Nyysti

Íris Ólafsdóttir

Jóhannes Óðinsson

Kári Þór Barry

Klara Sigurðardóttir

Vilborg Björgvinsdóttir

Sýningarstjóri er Anna Clausen

Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun er hluti af viðamikilli dagskrá útskriftarhátíðar Listaháskóla Íslands. Verk útskriftarnema verða síðar til sýnis á útskriftarsýningu BA nema í hönnun og myndlist í Hafnarhúsi sem opnar 17. maí næstkomandi.

Facebook event