Miðvikudaginn 25. mars kl. 17:00 heldur Skerpla tónleika í Dynjanda, sal tónlistardeildar LHÍ.
Á efnisskránni eru verk eftir nemendur sem unnin eru út frá þema annarinnar, útvarp sem skapandi miðill, með sérstakri áherslu á útvarpsóperur.
Frítt inn og öll hjartanlega velkomin.
Skerpla er tónlistarhópur sem starfar innan Listaháskóla Íslands og var stofnaður haustið 2018. Hópurinn rannsakar, skapar og flytur tónlist af tilraunakenndum toga með það að markmiði að víkka út hefðbundnar hugmyndir um tónlist.
Starfsemi Skerplu er leidd af Berglindi Maríu Tómasdóttur, prófessor við LHÍ, og John McCowen, stundakennara við LHÍ
//
On Wednesday, March 25 at 5:00 pm, Skerpla will present a concert in Dynjandi, the concert hall of the Iceland University of the Arts’ Department of Music.
The program features works by students developed around this semester’s theme, radio as a creative medium, with a particular focus on radio operas.
Admission is free and all are warmly welcome.
Skerpla is a music ensemble within the Iceland University of the Arts, founded in autumn 2018. The group explores, creates, and performs experimental music with the aim of expanding conventional notions of what music can be.
Skerpla is led by Berglind María Tómasdóttir, Professor at IUA, and John McCowen, Adjunct Lecturer at IUA.