Samhengi // Hádegisfyrirlestur 20.3.26 – 12:15-13:00
Samhengi býður velkomna Karólínu Eiríksdóttur föstudaginn 20. mars með fyrirlesturinn Tónlist ferilsins þar sem Karólína mun fjalla um eigin tónlist frá mismunandi tímabilum ferilsins.
Viðburðurinn fer fram í Dynjanda, húsi Tónlistardeildar, Skipholti 31.
Öll hjartanlega velkomin
//
Samhengi welcomes Karólína Eiríksdóttir on Friday, March 20th with the lecture Music of my Career, in which Karólína will discuss her own music from different periods of her career.
The event will take place at Dynjandi, the home of the Music Department, Skipholti 31.
Everyone is warmly welcome.

Karólína Eiríksdóttir stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og í Bandaríkjunum. Hún hefur unnið við tónsmíðar, kennslu og margvísleg önnur tónlistarstörf. Karólína hefur verið í stjórnum Íslenskrar tónverkamiðstöðvar, Tónskáldafélags Íslands, Listahátíðar í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.
Hljómsveitarverk Karólínu eru 9 talsins, öll hafa þau verið flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands og mörg þeirra víðar. Karólína hefur samið fjölda verka fyrir einleikshljóðfæri, kammerhópa, einsöngvara og kóra, auk rafverka. Óperur Karólínu eru sex. Óperan Magnús María, var frumflutt á Álandseyjum í júlí 2014 og var í kjölfarið sýnd víða um Norðurlönd. Óperan var tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlanda árið 2016. Óperan Lisbeta var pöntuð í tilefni 100 ára sjálfstjórnarafmælis Álandseyja og frumflutt þar árið 2021 og ári síðar í Helsinki. Árið 2021 var óperan BLY frumflutt af Norrlandsoperan í Svíþjóð.
//
Karolina Eiriksdottir was born in Reykjavík. She studied at the Reykjavik College of Music, where Thorkell Sigurbjornsson was her teacher of composition. She continued her studies at the University of Michigan in Ann Arbor, and received masters degrees in composition and music history and musicology.
She has been active in Iceland’s music life, as a composer, teacher and various other musical activities.
Among her works are solo and chamber pieces, orchestral pieces, computer music and six operas, among them Magnus Maria, premiered in Åland, July 2014.