Fyrirlestrarröðin Samhengi býður Þorbjörgu Daphne Hall, prófessor við Tónlistardeild LHÍ, velkomna föstudaginn 27. nóvember með erindið Tónlistarháskólar og samfélagsmiðuð tónlist.
Fyrirlesturinn fjallar um hvernig þátttökumiðuð tónlistarverkefni geta víkkað skilning tónlistarnema á tónlistariðkun þannig að hún nái ekki aðeins til framúrskarandi flutnings heldur einnig til samvinnu, leiðtogahlutverks og samfélagslegrar ábyrgðar. Í fyrirlestrinum er byggt á rannsóknum á Kordu Samfóníu og rannsóknarverkefninu Building Bridges og skoðað hvernig samfélagsmiðuð tónlistariðkun getur mótað sjálfsmynd nemenda, sjálfstraust til athafna og námsferil þeirra. Fjallað verður um þau einstöku námstækifæri sem skapast þegar nemendur starfa með fólki með ólíkan bakgrunn, reynsluheim og sérþekkingu.
Viðburðurinn er í Dynjanda, sal Tónlistardeildar, og er öllum opinn.
//
The lecture series Samhengi welcomes Þorbjörg Daphne Hall, Professor at the Iceland University of the Arts’ Music Department, on Friday, November 27th, with the lecture Higher Music Education and Socially Engaged Practice.
The lecture explores how participatory music projects can expand students’ understanding of musicianship beyond performance excellence to include collaboration, facilitation, and social responsibility. Drawing on research from Korda Samfónía and the Building Bridges project, the lecture examines how socially engaged music-making can shape students’ identities, agency, and professional trajectories. It highlights the unique learning opportunities that emerge when students work alongside people with diverse backgrounds, experiences, and forms of expertise.
The event takes place in Dynjandi, the Music Department’s hall, and is open to all.
Þorbjörg Daphne Hall
Þorbjörg Daphne Hall er prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Þorbjörg leiðir Building Bridges Through Collaboration (Byggjum brýr með samvinnu) sem er þriggja ára rannsóknarverkefni, sem styrkt er af Rannsóknasjóði Vísinda og tækniráðs, sem skoðar starfsemi og aðferðafræði MetamorPhonics sem er dæmi um samfélagsmiðað tónlistarverkefni. Samhliða því vinnur Þorbjörg að rannsókn um íslensku tónlistarsenuna og innviði hennar og rannsóknarverkefni um íslenska jazztónlist (1930-2010) í samvinnu við Ásbjörgu Jónsdóttur. Hún ritstýrði bókinni Sounds Icelandic sem kom út hjá Equinox Publishing 2017 ásamt Nicola Dibben, Árna Heimi Ingólfssyni og Tony Michell. Þorbjörg hefur gefið út greinar og haldið fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum um íslenska tónlist, tónlist og þjóðerniskennd, kvikmyndina Heima eftir Sigur Rós og um tónlist í Kristjaníu í Kaupmannahöfn. Hún hefur verið einn af ritstjórum Þráða, tímariti tónlistardeildar LHÍ frá 2016.