Dagsetning
24. október 2025
Tími
12:15–13:00
Staðsetning
Dynjandi, Skipholt 31, 105 Reykjavík
Deild
Tónlistardeild

Samhengi // Hádegisfyrirlestur 24.10.25 – 12:15-13:00 // Dynjandi, Skipholt 31, 105 Reykjavík

Samhengi býður velkomna Heklu Magnúsdóttur föstudaginn 24. október. Á fyrirlestrinum skoðar Hekla grafíska nótnaskrift og mismunandi aðferðir til að semja fyrir theremin og möguleika þess. Einnig ræðir hún mismunandi stefnur og tilraunir með hljóðfærið í gegnum árin.

Hekla Magnúsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla íslands með BA gráðu í tónsmíðum árið 2016. Árið 2023 útskrifaðist hún svo með MA frá Listaháskóla Íslands í listkennslu. Þar á undan Hekla hefur undanfarið haldið vinnustofur og námskeið sem blanda saman tónlist, list og rafi bæði hérlendis og erlendis.