Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Vakt / Shift

Salka Margrét Sólberg Auðunsdóttir
Einkasýning í Huldulandi
Opnun 6. nóvember 17:00 – 19:00

—————

Súkkulaðihúðaðir strigaskór bíða næstu vaktar

hárnet yfir höfuð og skeggnet yfir loðinn vanga

endurtekningin varð lag sem enginn hlustar á

dagurinn leið í sama takti og sama sæta lyktin hangir í loftinu.

Hver skápur geymir snefil af þessum

sem stundum gleymir að læsa líf sitt inni

Ég grannskoða allt en snerti ekki neitt.

Forvitni mín er fastur vani.

//

Chocolate coated sneakers wait for their next shift

hair net on head, beard net over a coarse cheek

repetition became a song no one listens to

the day passed in the same rhythm,

the same sweet scent lingers in the air.

Each locker holds a trace of someone

who sometimes forgets to lock their life inside it

I inspect everything but touch nothing.

My curiosity is a locked habit.
—————

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 25. september – 27. nóvember 2025.
Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur. Kennarar Hekla Dögg Jónsdóttir og Styrmir Örn Guðmundsson.

Nánari upplýsingar um einkasýningaröðina má finna HÉR.

Aðrir viðburðir

: ?>