Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Opnun: Sýning Geirsgötu 11. / Opening: Exhibition at Geirsgata 11.
Verið velkomin á sýningu Rafnar, Vöruhönnunarbrautar Listaháskóla Íslands, Félags Húsgagna og Innanhússarkitekta, FLÖFF og MADNE – Meistaranema í Design & New Enviornments sem fer fram að Geirsgötu 11 á tímabilinu 07.05 – 10.05. Um er að ræða fimm ólíkar sýningar sem mætast á gömlu höfninni í Reykjavík – sjá lýsingar að neðan:
Vöruhönnunarbrautar Listaháskóla Íslands:
Tækifæri“ er samsýning upprennandi vöruhönnuða vöruhönnunarbrautar Listaháskóla Íslands. Verkefni sýningarinnar eiga það sameiginlegt að sýna fram á fjölda tækifæra þegar kemur að staðbundnum hráefnum og framleiðslu. Verkefni með hefðbundin og óhefðbundin efni; timbur, títaníum, skinn, skít og skötu velta upp spurningum um framtíð framleiðslu á íslandi, hvort það skipti yfir höfuð máli? til hvers sé að vinna? og hvort ný aðferðafræði, virðismat og hugarfar geti opnað fyrir ný tækifæri?
https://www.honnunarmidstod.is/honnunarmars/dagskra/2026/taekifaeri-potential-261
Rafnar:
Hreyfing og form á hafi úti skoðar hvernig einstök íslensk vöruþróun varð að veruleika til að mæta raunverulegri þörf sjófarenda við krefjandi aðstæður Norður-Atlantshafsins. Rafnar ehf. var stofnað í Reykjavík af Össuri Kristinssyni, einum afkastamesta frumkvöðli landsins, sem nýtti áratuga reynslu af hönnun og nýsköpun til að takast á við grundvallar áskorun í siglingum: Að draga úr höggi og álagi meðal þeirra sem starfa á hafi úti. Afraksturinn var einkaleyfisvarinn skrokkur sem mótað hefur bæði útlit báta og upplifun þeirra sem eru um borð.
https://www.honnunarmidstod.is/honnunarmars/dagskra/2026/hreyfing-og-form-a-hafi-uti-281
Félag Húsgagna og Innanhússarkitekta:
Á HönnunarMars 2026 mun Félag húsgagna- og innanhúsarkitekta (FHI) kynna sýninguna Innanhússarkitektinn – upplifun sem býður almenningi inn í hugarrými innanhússarkitekta. Markmið okkar er að varpa ljósi á það sem oft er ósýnilegt: hugsunina, greininguna og þá marglaga vinnu sem liggur að baki í hverju rými.
https://www.honnunarmidstod.is/honnunarmars/dagskra/2026/innanhussarkitektinn-270
MADNE:
Sýningin “hreyfingarbundin tengsl” afhjúpar falin gildi í daglegu umhverfi okkar sem eiga það til að gleymast. Verkin eiga það sameiginlegt að kanna hvernig hönnun getur afhjúpað falin kerfi, endurskilgreint úrgang sem auðlind og endurbyggt tengsl milli fólks, efniviðs og umhverfis.
https://www.honnunarmidstod.is/honnunarmars/dagskra/2026/ma-design-new-environments-258
FLÖFF:
Flöff kynnir nýja hönnun af hljóðdempandi veggpanelum sem unnir eru úr íslenskum textílúrgangi. Panelarnir eru framleiddir úr notuðum textíl og íslenskri afgangs ull. Sýningin Flöff á vegginn á HönnunarMars er fyrsta opinbera kynning Flöff á þessu nýja efni og gefur gestum tækifæri til að upplifa það í nærveru og sjá hvernig textílúrgangur getur öðlast nýtt líf.
https://www.honnunarmidstod.is/honnunarmars/dagskra/2026/floff-a-vegginn-287