Í verkum sínum beitir Una ýmsum aðferðum til að velta upp spurningum um fegurð, gildi, tilvist okkar, hegðun og hátterni. Hún notar til þess áferð og gildishlaðin efni á slunginn en sparlegan hátt. Með nákvæmum uppstillingum á fábrotnum munum skapa verkin ákveðið sýndaryfirborð þar sem allt virðist með felldu. En verkin taka á sig háttvísa blekkingu og dansa á óræðum skilum þess raunverulega og eftirlíkingar og ýta þannig við hefðbundnum hugmyndum um merkingu og skynjun.
Í fyrirlestri sínum mun Una segja frá ferli sínum og vinnuaðferðum. Hún mun fjalla um verk sín og innsetningar og hvernig töfrabrögð, sviðssetningar og biðstofur koma við sögu.
Una Björg Magnúsdóttir (f. 1990) nam myndlist við Listaháskóla Íslands og stundaði framhaldsnám við ÉCAL í Sviss þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Verk hennar hafa verið sýnd víða, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni ASÍ, Gerðarsafni, Y gallerí, Ásmundarsal, KEIV í Aþenu, Künstlerhaus Bethanien í Berlín og Ausstellungsraum Klingenthal í Basel. Samhliða eigin listsköpun hefur Una verið partur af listamannarekna sýningarrýminu Kling & Bang frá árinu 2019 þar sem hún skipuleggur sýningar og verkefni í samstarfi við aðra listamenn.