Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Saman ferðumst við hina fyrirfram ákveðnu leið plánetunnar okkar, á leiftur hraða í gegnum geiminn. Á sporbraut, umkringd hringrásarmynstrum í náttúrunni sem og í lífsmynstri mannfólksins, fetum við hvert um sig, okkar eigin veg.

Árlegir tónleikar Kordu Samfóníu hafa skapað sér sess sem ómissandi viðburður í dagatali íslensku tónlistarsenunnar. Þessi óvenjulegasta hljómsveit landsins telur yfir fjörutíu meðlimi og kemur tónlistarunnendum endalaust á óvart með sínum fágaða flutningi og öflugu tónsmíðum sem snerta á mismunandi tónlistarstefnum, frá klassískum sinfónískum hljómheimi yfir í harðasta rokk. Korda Samfónía var tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir debut tónleikana sína 2022 og fékk hvatningarverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2023 fyrir að nýta tónlist og miðla henni á skapandi máta til að efla fólk til frekari virkni í samfélaginu.

Tónlist Kordu Samfóníu er áhrifarík og kraftmikil, samin af hljómsveitarmeðlimum í sameiningu, en þaueru nemendur Listaháskóla Íslands og fólk á mismunandi stöðum í endurhæfingu eftir lífsbreytandi áföll og heilsubrest.

Miðasala er á Harpa.is

 

Korda er samstarfsverkefni MetamorPhonics, Listaháskóla Íslands, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, Hörpu og starfsendurhæfingamiðstöðvum víðsvegar um landið. Verkefnið er styrkt af Heilbrigðisráðuneyti, Félags og vinnumálaráðuneyti, Mennta og barnamálaráðuneyti og Menningar og atvinnumálaráðuneytum Íslands ásamt Tónlistarborginni Reykjavík og Tónlistarsjóði.

Í janúar 2024 urðu kaflaskil hjá MetamorPhonics þegar Listaháskóli Íslands fékk viðamikinn styrk fyrirþriggja ára alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem snýr listrænni stjórnun og aðferðafræðiMetamorPhonics og hver áhrif verkefnisins eru á þátttakendur sem eru í endurhæfingu eða hafa reynslu afheimilisleysi, en einnig hver áhrif verkefnisins eru á tónlistarnemendur á háskólastigi. Rannsóknin er samstarfsverkefni milli fjögurra háskóla á Íslandi og í Bretlandi. Listaháskóli Íslands sér um verkefnastjórn og er aðalrannsakandi Dr Þorbjörg Daphne Hall, prófessorarnir Dr Lee Higgins (International Centre for Community Music) og Dr Jo Gibson eru rannsakendur frá York St Johnháskólanum, Guildhall School of Music and Drama þar sem Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths starfar, kemur verkefninu í gegnum hljómsveitina The Messengers og Anna Hildur Hildibrandsdóttir kemur frá Háskólanum á Bifröst, þar sem hún stýrir meistaranámi og rannsóknarsetri um skapandi greinar, en Anna Hildur mun vinna nýja heimildarmynd sem lið í útkomu rannsóknarverkefnisins.  

Verkefni MetamorPhonics og rannsóknarverkefnið eru kynnt á ráðstefnum um allan heim og vaxandiáhugi er á aðferðafræði, tónlist og áhrifum verkefnisins innan háskólasamfélagsins sem ogtónlistargeirans.

Korda einkennist af jafnrétti, vingjarnlegu, stuðningsríku og skapandi andrúmslofti þar sem fólk vinnursaman, skapar, lærir, styrkist og vex.

Listrænn stjórnandi er Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths.

Aðrir viðburðir

: ?>