Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

KIRSUBERJAGARÐURINN – Frumsýning 23. maí 2024 – Kassinn, Þjóðleikhúsið

Útskriftarnemar leikarabrautar LHÍ takast á við eitt af ástsælustu verkum leikbókmenntanna, Kirsuberjagarðinn, eftir Anton Tsjekhov í leikstjórn Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur.

Þetta dásamlega verk fellur aldrei úr gildi og á alltaf erindi við okkur sama hvaða tímar eru. Ljubov Andreévna og hennar fjölskylda og fylgdarlið koma heim á fallega ættaróðalið með kirsuberjagarðinum sem á að fara á uppboð vegna vanrækslu þeirra og eyðslu. Hér er fjallað um mennskuna, um manneskjuna í allri sinni dásamlegu, ófullkomnu og grátbroslegu dýrð. Allt tekur enda í þessum heimi og allt er breytingum háð, en óttinn við breytingar getur verið lamandi. Kirsuberjagarðurinn býr í raun í hjörtum okkar allra, það eina sem við þurfum að gera er að hugsa vel um hann og elska.

 

ÚTSKRIFTARNEMAR & HLUTVERK

Birta Sólveig Söring Þórisdóttir / Ljúbov Andreévna Ranévskaja, óðalseigandi
Hólmfríður Hafliðadóttir / Anja, dóttir Ljúbov
Berglind Alda Ástþórsdóttir / Varja, uppeldisdóttir Ljúbov
Selma Rán Lima / Dúnjasha, vinnukona
Gunnur Martinsdóttir Schlüter / Símjonova – Píshjik
Gréta Arnarsdóttir / Sjarlotta Ívanovna, heimiliskennari
Jón Bjarni Ísaksson / Leoníd Andreévítsj Gajev bróðir Ranévskaju
Mikael Emil Kaaber / Firs, gamall þjónn & Jasha, ungur þjónn
Nikulás Hansen Daðason / Érmolaj Aleksejvitsj Lopakhín kaupmaður
Jakob van Oosterhout / Pjotr Sergejvitsj Trofimov stúdent & Semjon Pantelejevevítsj Epikhodov skrifstofumaður

 

LISTRÆNIR STJÓRNENDU

Leikstjóri: Edda Björg Eyjólfsdóttir
Leikmynd og búningar: María Th. Ólafsdóttir
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Tónlist: Peter J. Östergaard
Hljómsveit: Lindong Lin söngur, Yuichi Yoshimoto á hljómborði/píanó.
Leikmyndasmíði: Egill Ingibergsson
Ljósmyndir: Leifur Wilberg Orrason

SÝNINGAR:
Frumsýning fim 23. maí kl. 20.00
2 sýning fös 24. maí kl. 20:00
3 sýning lau 25. maí kl. 20:00
4 & 5 sýning sun 26. maí kl. 16:00 & 20:00
6 sýning þrið 28. maí kl. 20:00
7 sýning mið 29. maí kl. 20:00
8 sýning fim 30. maí kl. 20:00
9 sýning fös 31. maí kl. 20:00
10 sýning lau 1. júní kl. 20:00

 

Efsta röð frá vinstri: Gunnur Martinsdóttir Schlüter, Jón Bjarni Ísaksson, Gréta Arnarsdóttir, Selma Rán Lima, Nikulás Hansen Daðason, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Mikael Emil Kaaber, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Hólmfríður Hafliðadóttir & Jakob van Oosterhout.

Aðrir viðburðir

: ?>