Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Háskóladagurinn

Háskóladagurinn 2026 fer fram laugardaginn 28. febrúar milli klukkan 12:00 – 15:00.

Listaháskóli Íslands býður gesti velkomin í Stakkahlíð 1 þar sem allar deildir og námsbrautir skólans verða kynntar.

Háskóladagurinn 2026

Laugardagur 28. febrúar · Kl. 12:00–15:00 · Stakkahlíð 1

Listaháskóli Íslands opnar dyrnar og býður þér á lifandi og fjölbreyttan kynningardag þar sem þú getur skoðað aðstöðuna, hitt nemendur og starfsfólk og fundið hvaða námsleið heillar þig mest.

Lifandi dagskrá allan daginn

12:00 – Húsið opnar
12:00–15:00 Bratti – Kvikmyndalistadeild sýnir verk nemenda
12:00–15:00 Litla sviðið – Tónlist og stemning í Fjöru
Meðal annars stíga á svið:

Plagues, Krassofff, Bjarni Daníel, Kraftgalli og Dínó Sauris

12:30, 13:30, 14:30 – Leiðsagnir um húsið

Kynningar og sýningar í öllum deildum

Arkitektúrdeild

hæðheimasvæði arkitektúrdeildar
Kynning á BArch og MArch námi + verkefni nemenda til sýnis.
Hönnunardeild

Grafísk hönnun – H207, 2. Hæð
Verk og ferilmöppur nemenda á sýningu.
INDA – ný braut í samstarfi við HR, 1. hæð
Vöruhönnun – Verkstæði, 1. hæð
Verk og ferilmöppur nemenda á sýningu.
Fatahönnun – jarðhæð – Heimasvæði fatahönnunar
Verk og ferilmöppur nemenda á sýningu.
Kvikmyndalistadeild

Bratti, 1. hæð
Kvikmyndasýningar – popp í boði!

Listkennsludeild

Torga, 1. hæð
Kynning á námi og vinnu deildarinnar.

Myndlistardeild

Bókasafn, jarðhæð
Nemendur myndlistardeildar sýna nýleg verk.

Sviðslistardeild

Torga, 1. hæð
Nemendur og starfsfólk kynna námið.

Tónlistardeild

Torga, 1. hæð
Nemendur og kennarar kynna námið og lifandi tónlist á litla sviðinu.

Á Torgu hittir þú líka:

Alþjóðaskrifstofu – skiptinám og starfsnám
Námsráðgjafa
Stúdentaráð LHÍ
Háskólann á Bifröst – skapandi greinar
Landbúnaðarháskóla Íslands – landslagsarkitektúr

Við hlökkum til að sjá þig!

Nánari upplýsingar um Háskóladaginn má finna hér.

Gengið er inn í húsið á tveim stöðum (frá Stakkahlíð og frá Háteigsvegi)

Aðgengi að Stakkahlíð 1 er gott; lyfta er í byggingunni og salerni eru á hverri hæð.

Aðrir viðburðir

: ?>