Vetrarskólinn Unfolding Data Through Art fór fram í Reykjavík dagana 27.–30. október 2026. Alls tóku 20 nemendur víða að úr heiminum þátt í fjögurra daga dagskrá þar sem sjónum var beint að rannsóknum í listum og stafrænum hugvísindum og vinnu með gögn og gervigreind.

Í Vetrarskólanum unnu þátttakendur meðal annars með ólík gervigreindarlíkön, sköpuðu og skipulögðu eigin gagnasöfn og skoðuðu hvernig ákvarðanir um söfnun og úrvinnslu gagna hafa áhrif á niðurstöður. Einnig var fjallað um varðveislu, miðlun og sýningu listaverka sem byggja á tíma og tækni.

Dagskráin fór fram í Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Listasafn Íslands undir leiðsögn Nicola Privato frá Háskóla Íslands, Majellu Clarke frá Listaháskóla Íslands og Sigríðar Regínu Sigurþórsdóttur frá Háskóla Íslands og Listasafni Íslands.

Vetrarskólinn var skipulagður af Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista, Intelligent Instruments Lab við Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Listasafni Íslands, með stuðningi DARIAH Digital Arts and Humanities Training and Summer School Small Grants Call 2026.

Nánari upplýsingar um Unfolding Data Through Art má finna hér.