Kvikmyndalistadeild
Deild
FILMA · Kvikmyndalistadeild · Útskriftarhátíð 2025
Námsleið
2025
Ár
Um verkefnið

Konráð útskrifaðist af kvikmyndabraut úr Borgarholtsskóla árið 2019. Eftir brautskráningu fór hann að einbeita sér að kvikmyndatöku og hefur starfað við það undafarin fimm ár. Konráð hefur verið tökumaður í fjölda verkefna bæði innan og utan skóla og mörg þeirra komist á hátíðir eins og RIFF og Stockfish. Konráð er einnig Eddu-tilnefndur fyrir sjónvarpsþættina Miðjan (2022).

BA Kvikmyndagerð

Stuttmynd: Snjóþungi

Á hefðbundnum vinnudegi í fjárhúsinu lendir einræni bóndinn Þormar í snjóflóði. Þar sem hann liggur fastur undir snjónum óttast hann ekki aðeins um eigið líf heldur einnig um örlög eiginkonu sinnar, Hrafnhildar, og sonar þeirra, Arons.

Leikstjórn: Jóna Gréta Hilmarsdóttir Handrit: Jóna Gréta Hilmarsdóttir Framleiðandi: Jóna Gréta Hilmarsdóttir, Konráð Kárason Þormar Stjórn kvikmyndatöku: Konráð Kárason Þormar Klipping: Tómas Sturluson Hljóðhönnun: Ísidór Jökull Bjarnason Tónlist: Jóhannes Damian Patreksson Framleiðandi á setti: Rán Christer Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Álfrún Örnólfsdóttir, Erpur Aron Tristansson