Útskrift Listaháskóla Íslands 2026 fer fram í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 19. júní klukkan 14:00. Athöfnin markar hátíðlegan áfanga í lífi nýútskrifaðra nemenda og er hún jafnan einn af hápunktum starfsárs skólans.
Viðburðurinn er lokaður almenningi en í ár býðst áhugasömum að fylgjast með útskriftinni í beinu streymi. Með því gefst fjölskyldum, vinum og listunnendum um land allt – og víðar – tækifæri til að taka þátt í gleðinni og fagna árangri útskriftarnema.
Útskrift Listaháskólans er þekkt fyrir fjölbreytta dagskrá þar sem skapandi og óvænt atriði fá að njóta sín. Á hverju ári má búast við framúrskarandi listrænum innslögum sem endurspegla þann kraft og fjölbreytileika sem einkenna skólann.
Í lok athafnar mun heiðursræðumaður flytja ávarp, líkt og hefð er fyrir.
Við hvetjum öll sem áhuga hafa til að taka þátt og fylgjast með þessari hátíðlegu stund í gegnum streymi.
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að horfa á streymið