Rannsóknarsjóður LHÍ hefur nú lokið úthlutun styrkja fyrir árið 2026. Hlutverk sjóðsins er að styðja við rannsóknir akademískra starfsmanna og stuðla að uppbyggingu þekkingar á fræðasviði lista.

Sex verkefni hlutu styrk að þessu sinni. Umsóknir endurspegluðu fjölbreytt viðfangsefni og voru metin út frá faglegu gildi og framlagi til þekkingarsköpunar á fræðasviði lista.

Verkefnin sex eru eftirfarandi: 

  • Elisa Dainese – Norðurslóðir
  • Ása Helga Hjörleifsdóttir – Óhemja: Hraðferð um sögu hinnar skapandi konu
  • Adam Flint Taylor – Til prents
  • Hrefna Lind Lárusdóttir – Codapent
  • Sigurður Guðjónsson – Sigurður Guðjónsson: Kvikmyndaverk 2004-2007
  • Ragna Sigríður Bjarnadóttir – Handprjón sem framleiðsluaðferð í tískuiðnaði

Við óskum styrkhöfum innilega til hamingju.