Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Viljayfirlýsing um uppbyggingu framtíðarhúsnæðis Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð var undirrituð í dag. Yfirlýsingin markar tímamót í sögu skólans þar sem nú er fjármögnunin útlistuð með skýrum hætti og er undirritun yfirlýsingarinnar því sérstakt fagnaðarefni. Uppbyggingin í Stakkahlíð felur í sér að allar deildir Listaháskólans munu sameinast undir einu þaki í fyrsta sinn frá stofnun skólans.
Talið er að núverandi aðstaða við Stakkahlíð mæti vel fjölbreyttum þörfum Listaháskólans, en gert er ráð fyrir að byggt verði við húsnæðið til að koma starfseminni þar fyrir til framtíðar. Í fyrsta áfanga verður ráðist í verulegar endurbætur á núverandi húsnæði undir starfsemi háskólans. Í öðrum áfanga verður farið í uppbyggingu á svæðinu til að koma annarri sérhæfðri starfsemi háskólans fyrir sem rúmast ekki innan núverandi bygginga á grundvelli þarfagreiningar.

Umræðuna um að koma skólanum undir eitt þak má rekja allt til stofnunar skólans en það hefur verið markmiðið frá upphafi. Ýmsir valkostir hafa verið skoðaðir undir starfsemina en nú liggur fyrir raunhæft val á hentugri staðsetningu undir þessa mikilvægu starfsemi.
„Skapandi greinar hafa ómæld tækifæri til vaxtar og Listaháskóli Íslands er vagga og burðarstoð þessara greina og gegnir því lykilhlutverki. Með viljayfirlýsingunni er fjármögnun verkefnisins loksins tryggð á skýran hátt sem eru sannkölluð tímamót. Það gerir okkur kleift að reisa nýjan Listaháskóla hratt og vel þannig að skólinn fái sambærilega aðstöðu og aðrir háskólar landsins. Þetta er fagnaðarefni fyrir land og þjóð og við erum þakklát menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fyrir að leiða málið áfram af festu og framsýni.“
– Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands

Listaháskólinn er skóli allra listgreina og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir skapandi greinar, sem eru ein af undirstöðum fjölbreytts atvinnulífs, menningar og nýsköpunar hér á landi. Listaháskólinn er eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi og hefur því víðtæku hlutverki að gegna gagnvart landsmönnum. Skólinn starfar í alþjóðlegu umhverfi og miðar sig við þá skóla í nágrannalöndunum sem þykja skara fram úr í kennslu og miðlun þekkingar á sviðum lista.
Í dag er Listaháskólinn starfræktur í fjórum byggingum en stór hluti starfseminnar fer nú þegar fram í Stakkahlíð. Frá árinu 1948 eru fyrstu drög að skipulagi Hlíðanna austan Lönguhlíðar þar sem gatan Stakkahlíð var mörkuð út frá turni Sjómannaskólans. Á næstu árum mótaðist sú hugmynd að svæðið austan hinnar nýju götu yrði skólasamfélag með ýmsum stofnunum – eins konar „háborg“ mennta og menningar. Byggingin við Stakkahlíð 1 er mörgum kunnug en þar var Kennaraháskóli Íslands til húsa frá árinu 1962 sem síðar sameinaðist Háskóla Íslands. Nýjasta byggingin, Hamar, var reist á lóðinni um síðustu aldamót og tekin í notkun árið 2002. Húsnæðið við Stakkahlíð 1 hefur því hýst menntastofnun allt frá upphafi en fær nú nýtt hlutverk sem kjarni skapandi greina á Íslandi.

Viljayfirlýsinguna undirrituðu menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgastjórinn í Reykjavík og Kristín Eysteinsdóttir rektor við opnun útskriftarsýningar BA nema í arkitektúr, hönnun og myndlist í Listasafni Reykjavíkur. Undirritunin er einn stærsti áfangi í sögu skólans og við fögnum honum innilega – framtíðin er björt.