Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Listaháskóli Íslands veitir á hverju vori styrk úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen til framúrskarandi tónlistarnema við skólann. Að þessu sinni hlaut Oliver Rähni, pianóleikar verðlaunin sem voru veitt við hátíðlega athöfn í Skriðu, sal LHÍ í Stakkahlíð í gær.
Við þetta tækifæri ávarpaði Kristín Eysteinsdóttir, rektor, gesti og talaði um mikilvægi Styrktarsjóðs Halldórs Hansen, sem var stofnaður árið 2002 með gjöf Halldórs til Listaháskóla Íslands. Sjóðurinn hefur það hlutverk að varðveita tónlistarsafn hans og styðja framúrskarandi tónlistarnema árlega. Lýst er hversu miklu slíkur stuðningur getur skipt fyrir nám, listsköpun og faglega þróun ungs tónlistarfólks.
Þrátt fyrir að Halldór hafi verið læknir að mennt var tónlist stóra ást lífs hans, einkum sönglist, og hann studdi íslenskt tónlistarlíf bæði með áhuga sínum og handleiðslu. Með sjóðnum vildi hann tryggja að ástríða hans fyrir tónlist lifði áfram og nýttist öðrum. Með stuðningi sjóðsins sé keflinu rétt áfram og framtíð tónlistar mótuð.
„Við ætlum að leyfa þessari stund hér í dag að vera bæði hátíðleg og hlý — við ætlum að njóta tónlistar en líka fræðast og dvelja við arfleifð Halldórs.“


Áður en lengra var haldið var tónlistinni leyft að hljóma með harmonikkudúett skipaðan þeim Igor Kabala og Matthías Kormákssyni sem eru nemendur við Tónlistardeild.
Þeir opnuðu viðburðinn með lögunum Milonga del angel eftir Astor Piazzola og Comastor eftir Frank Angelis.
Einnig má vekja athyggli á tónleikum sem þeir munu taka þátt í með öðrum heimsfrægum harmonikkumeisturum 18. apríl í Salnum, Kópavogi.



Á ári hverju hafa erindi verið flutt á Tónlistardegi Halldórs Hansen og í ár var það Haukur Ingi Jónasson sem bar upp glærur og flutti erindi sem bar titilinn Raddir sálar og söngs- Áhugi Halldórs Hansen á sállækningum.
Í glærukynningu Hauks Inga Jónassonar var dregin upp áhrifarík mynd af Halldóri Hansen, lækni, menningarunnanda og djúphugsuði sem starfaði á mörkum læknisfræði, sálgreiningar og listar.
Halldór ætlaði sér upphaflega að helga sig óperu- og leikhúslist í París, en harðir atburðir í fjölskyldu hans breyttu lífshlaupi hans. Hann varð barnalæknir, starfaði bæði í New York og á Íslandi og sinnti starfi sínu af mikilli samúð og nærveru.
Tónlist, einkum ópera, var honum þó aldrei fjarlæg. Í kynningunni var líf hans sett í samhengi við sálgreiningarkenningar Sigmunds Freud, Önnu Freud og Donalds Winnicott, þar sem tónlist birtist sem leið að dulvitundinni, leiksvæði tilfinninga og rými hins sanna sjálfs.
Halldór var þekktur fyrir að hlusta meira en hann talaði og veitti mörgum bæði faglega og mannlega huggun. Hann lést í Reykjavík sumarið 2003, en arfleifð hans lifir áfram í tengslum hans við list, tónlist og manneskjuna sjálfa.

Að loknu erindi Hauks kynnti Pétur Jónasson, deildarforseti tónlistardeildar, val á styrkþega sjóðsins í ár. Einnig átti hann orða á kynnum sínum við Oliver fyrir nokkrum árum þegar hann hóf nám sitt í skólanum og feril hans fram að þessu augnabliki.
Oliver Rähni hóf píanónám 8 ára gamall í Tónlistarskóla Bolungarvíkur hjá Tuuli Rähni. Á þessum námsárum var hann þrisvar valinn til að koma fram í Eldborg í Hörpu á lokahátíð Nótunnar. Þar hlaut hann m.a. sérstaka viðurkenningu fyrir frumsamið verk í framúrskarandi flutningi. Oliver lauk framhaldsprófi árið 2022 með hæstu einkunn.
Frá 2023 hefur hann lagt stund á bakkalárnám í píanóleik við Listaháskóla Íslands, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur. Oliver hefur komið fram sem einleikari bæði hér á landi og erlendis, þar á meðal í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi, Írlandi, Póllandi og á Spáni. Hann hefur leikið einleik með hljómsveitum á borð við Kyiv Soloists í Eldborg í Hörpu, Hljómsveit Pärnu-borgar og Sinfóníuhljómsveit KRATT-tónlistarhátíðar í Eistlandi.
Haustið 2025 hlaut hann 1. sætið í sínum aldursflokki á IX. Píanókeppni EPTA. Oliver hefur einnig komið fram bæði í sjónvarpi og útvarpi hérlendis.
Oliver stefnir á frekara tónlistarnám erlendis, á meistarastigi.
Útskriftartónleikar Olivers Rähni verða haldnir í Salnum, Kópavogi 26.apríl næstkomandi.