Í dag hófu sextán nemendur nám við nýja námsleið í Tónlistardeild Listaháskóla Íslands:
Tónlist · Nýsköpun · Tækni.
Stórt skref er þar með stigið í tónlistarmenntun á Íslandi, en um er að ræða fyrsta flytjendanámið á háskólastigi (B.Mus) sem eingöngu er helgað rytmískri tónlist, þ.e. djass; rokk/popp; laga- og textasmíðar; og hljóðlist, hljóðvinnsla og hljóðtækni fyrir óhefðbundin hljóðfæri.
Fagstjóri deildarinnar er Dr. Phillip J. Doyle.
Við óskum nemendum, kennurum og Listaháskóla Íslands innilega til hamingju með daginn!
Hér má sjá nemendahópinn sem sótti fyrsta námskeiðið „Tónlistargeirinn I“ undir handleiðslu Grétu Salóme Stefánsdóttur, nýráðins dósents við deildina.