Hönnunarverðlaun Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn í Grósku fimmtudaginn 6. nóvember 2025. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi verk á sviði hönnunar og arkitektúrs sem stuðla að lífsgæðum, sjálfbærni og verðmætasköpun fyrir samfélagið.
Tilnefnt er í þremur flokkum: Vara, Staður og Verk, og í hverjum flokki eru þrír aðilar tilnefndir. Verkefnin endurspegla fjölbreytileika og gæði íslenskrar hönnunar í dag – frá nýsköpun í efnisnotkun til samfélagslegra lausna og upplifunarhönnunar.
Tilnefningar 2025:
- Vara:
- Oase– vatnsílát úr leir eftir Johönnu Seelemann
- FÉ– fatalína úr íslenskri ull frá RANRA
- Elja– fjallahjól frá Lauf Cycles
- Staður:
- Félagsbústaðir á Sjómannaskólareit
- Elliðaárstöð í Elliðaárdal
- Stöng – (Endur)túlkun yfirbygging yfir uppgröft í Þjórsárdal
- Verk:
- Lavaforming– rannsókn á nýtingu hrauns í byggingarhönnun
- Dýpi– plastlaus málning úr kalkþörungum
- Fischersund– skynverk sem sameinar ilm, tónlist og myndlist
Auk aðalverðlaunanna verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.
Hægt er að skrá sig á viðburðinn Hér