Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Atli Ingólfsson
Atli Ingólfsson er prófessor í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands. Hann nam tónsmíðar í Reykjavík, Mílanó og París. Atli hefur samið fjölda tónverka af öllu tagi sem leikin hafa verið víða heima og heiman, en fjöldi verkahans hefur jafnframt komið út á hljóðriti. Hann hefur ritað nokkuð um tónlist, menningu og bragfræði og birt m.a. í Révue d’analyse musicale, Skírni, Són, Tempo, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu sem og hér í Þráðum. Hann hefur einnig gefið út bókverkið Veðurskeyti frá Ásgarði (Forlagið 2021).
Berglind María Tómasdóttir
Berglind María hefur skipað sér í framvarðarsveit íslensks tónlistarfólks með tilraunagleði og forvitni að leiðarljósi. Hún er prófessor við Listaháskóla Íslands og hefur verið afar virk á tónlistarsenunni sem flytjandi og tónskáld, hérlendis og erlendis. Í verkum sínum leitast hún við að kanna ímyndir og erkitýpur sem og tónlist sem félagslegt fyrirbæri. Berglind hefur komið fram víðs vegar um heim, meðal annars í Ástralíu, Japan og Evrópu með Björk sem hluti af flautuseptettnum viibra. Hún hefur leikið inn á fjölda hljóðrita, til að mynda sem einleikari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Árið 2022 hlaut plata hennar, Ethereality, Íslensku tónlistarverðlaunin í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Verk Berglindar hafa meðal annars verið pöntuð og flutt á vegum Flautusamtaka Bandaríkjanna (The National Flute Association), Norrænna músíkdaga, Myrkra músíkdaga, Minnesotaháskóla í Duluth og Listahátíðar í Reykjavík. Berglind stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Konunglega danska konservatoríið og lauk doktorsprófi í flutningi samtímatónlistar frá Kaliforníuháskóla í San Diego árið 2013.
Einar Torfi Einarsson
Einar Torfi Einarsson er tónskáld og prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Hann nam tónsmíðar í Reykjavík, Amsterdam, Graz, og lauk doktorsprófi í tónsmíðum frá háskólanum í Huddersfield. 2013-2014 gegndi hann rannsóknarstöðu við Orpheus Institute í Belgíu. Tónlist hans hefur verið flutt á tónlistarhátíðum víða um heim og unnið til verðlauna í Hollandi og Austurríki. Rannsóknir hans hafa verið birtar í Perspectives of New Music og gefnar út af Leuven University Press og Routledge (CRC Press). Þá hefur tónlist hans verið gefin út hjá KAIROS og HCR útgáfunni.
Rory Murphy
Rory Murphy is an Irish composer and music theorist. His work has a primary focus on experimental and invented notation, and deals with the phenomenology of performance and interpretation, seeking novel and stimulating ways to engage performers creatively. To describe those of his works which are three-dimensional and multi-sensory in nature he has coined the term „notation-installation“, and three of these have been publicly premiered; Cneas (2025), frequency illusion (2023), and Hilling (2022). He received his M.Mus. in Composition from Iceland University of the Arts (2023), B.A. in Music from Trinity College Dublin (2018, first class honours), and completed an Erasmus Graduate Traineeship in Artistic Research at Orpheus Institute in Ghent, Belgium (2024). His music has been performed publicly in Belgium, England, Iceland, Ireland, Italy, and Northern Ireland, and he is represented by the Contemporary Music Centre in Dublin.
Sigurður Halldórsson
Sigurður Halldórsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Guildhall School of Music and Drama í London. Hann hefur fengist við fjölbreytta tónlistarstíla allt frá miðöldum til nútímans og starfar m.a. meðCaput hópnum, Voces Thules, Camerarctica, Skálholtskvartettinum og Symphonia Angelica og hefur komið víða fram sem einleikari. Sigurður var listrænn stjórnandi Sumartónleika í Skálholtskirkju frá 2004 til 2014. Hann starfar sem prófessor við Listaháskóla Íslands þar sem hann stýrir alþjóðlega NAIP meistaranáminu (New Audiences and Innovative Practice).