Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
FORMÁLI
Hér siglir í stafræna höfn 11. tölublað Þráða á tíu ára afmæli ritsins sem hefur af því tilefni gefið út safnrit á prenti sem inniheldur fyrstu tíu tölublöð ritsins. En Þræðir halda áfram og markar þetta tölublað því nýjan fasa. Hér birtast fjórar nýjar greinar eftir starfsmenn tónlistardeildar Listaháskóla íslands og jafnframt einn hollnema deildarinnar.
Atli Ingólfsson ríður á vaðið sem endranær og greinir frá rannsóknaverkefninu sínu Glósur Khallams. Þá greinir undirritaður einnig frá rannsóknum á stillingum sem notaðar eru í verkinu Fellingar tímans. Hollneminn Rory Murphy (MMus, 2023) sendir okkur svo ítarlega útlistun á nálgun hans við að semja fyrir segulómslaghörpu eða Magnetic Resonator Piano (MRP). Sigurður Halldórsson lokar svo þessu tölublaði með ferðasögu um ólíkan menningarheim Conakry í Gíneu.
Ég þakka ritstjórn að vanda kærlega fyrir góð og vönduð störf og vona að lesendur njóti skrifanna.
f.h. Þráða
Einar Torfi Einarsson