Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Formáli

  • Þræðir - Tölublað 10
  • Einar Torfi Einarsson

Það er vissulega gleðiefni að tölublöð Þráða skuli nú loksins telja með tveggja stafa tölu en ritið hefur starfað síðan 2016 og heldur því upp á 10 ára afmæli á næsta ári (og eru stór plön um þá hátíð í bígerð). 10. tölublað Þráða rennur því hér hátíðlega úr hlaði með sex nýjum greinum úr ýmsum áttum. Eins og oft áður eru það kennarar við tónlistardeild LHÍ sem brýna hér penna sína en einnig eru það nemendur deildarinnar, bæði núverandi og fyrrverandi, sem bera fram sín sjónarhorn og rýni. 

Atli Ingólfsson ríður á vaðið og birtir hér, í hálf-ljóðrænum stíl, yfirlýsingu sína um hvað list yfir höfuð sé og sérstöðu hennar í akademísku samhengi. Þá er Atli einnig annar burðarásinn í spjalli okkar um efni og viðfangsefni og hvernig það birtist á ólíkan hátt innan tónsmíða.  

Einar Indra rýnir svo í tónlist eins helsta raftónlistarmanns síðustu áratugi, Aphex Twin, með ákveðinni greiningartækni sem horfir einna helst á ‘topic’ eða minni. 

Greiningin heldur svo áfram í höndum Hróðmars Inga sem beinir henni að einu stórmenni rússneska skólans, Sergej Prokofjev, og setur í samhengi við klassíska stefja- og setningarfræði. 

Majella Clark, sem útskrifast í vor úr NAIP-náminu gefur okkur svo innsýn í lokaverkefnið sitt sem fjallar um nýsköpun á sviði hljómsveitarstjórnunar. 

Botninn slær svo Þórhallur Magnússon með hugleiðingum um skapandi gervigreind í tengslum við rannsóknaverkefnið hans sem og núverandi stöðu gervigreindar í samfélaginu. 

 

Ég þakka ritstjórn að vanda kærlega fyrir góð og vönduð störf og vona að lesendur njóti skrifanna. 

f.h. Þráða 

Einar Torfi Einarsson  

Úr sama tölublaði