Þann 13.febrúar heimsóttu þingmenn Viðreisnar, Pawel Bartoszek og Grímur Grímsson, Listaháskóla Íslands. Með þeim var Pétur Björgvin Sveinsson, aðstoðarmaður þingsflokks Viðreisnar. Kristín Eysteinsdóttir, rektor, og Haukur Björnsson, framkvæmdastjóri LHÍ, tóku á móti þeim og kynntu fyrir þeim starfsemi skólans. Rætt var um mikilvægi skapandi greina í verðmætasköpun landsins og hlutverk skólans í stóru samhengi.

Í kynningu skólans var aðstaða og húsakostur LHÍ tekinn fyrir en húsnæðismál skólans hafa lengi verið í brennidepli vegna bágrar stöðu mála. Mögulegar lausnir voru lagðar fram og kom fram sterkur vilji til að styðja skólann í vegferð hans að viðeigandi framtíðarlausn.

Við þökkum þingmönnum Viðreisnar kærlega fyrir komuna og bjóðum alla flokka velkomna í heimsókn.