Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Vel heppnuð tískusýning útskriftarnema í fatahönnun

  • 15.maí 2025

Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands fór fram í Hörpu þriðjudaginn 6. maí. Þar sýndu fatahönnuðir framtíðarinnar útskriftarverk sín.

Aðsóknarmet síðasta árs var jafnað á tískusýningunni í ár. Hátt í 600 gestir sóttu sýninguna sem tókst vel til. Gestir og aðstandendur sýningarinnar voru í skýjunum með útkomuna.

Níu fatahönnuðir útskrifast af námsbrautinni að þessu sinni en það eru þau: Arnar Freyr Hjartarson, Guðlín Theódórsdóttir, Hallgerður Thorlacius, Hannes Hreimur Arason Nyysti, Íris Ólafsdóttir, Jóhannes Óðinsson, Kári Þór Barry, Klara Sigurðardóttir og Vilborg Björgvinsdóttir.

Lokaverkefni nemenda í fatahönnun er einstaklingsverkefni sem samanstendur af frjálsri rannsókn, hönnun og gerð á línu af tískufatnaði undir handleiðslu leiðbeinenda.

Þá samdi og flutti Anna Róshildur tónlist fyrir tískusýninguna. En hún staðsetti sig á miðju sviðinu og gaf tískusýningunni tóninn.

Sýningarstjóri var Anna Clausen

Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun er hluti af viðamikilli dagskrá útskriftarhátíðar Listaháskóla Íslands. Verk útskriftarnema verða síðar til sýnis á útskriftarsýningu BA nema í arkitektúr, hönnun og myndlist í Hafnarhúsi sem opnar 17. maí næstkomandi.

Myndir: Eygló Gísla

Aðrar fréttir og greinar