*Nú er tækifæri til að skoða möguleika á að fá reynsluna metna til styttingar náms í gegnum raunfærnimat*
Raunfærnimat hefur það markmið að auðvelda fólki á vinnumarkaði sem hefur starfsreynslu að stunda nám og afla sér réttinda á skemmri tíma. Þannig er betur hægt að mæta þörfum samfélagsins og vinnumarkaðarins.
Hvers vegna að sækja um?
- Fáðu einingar fyrir raunverulega reynslu
- Styttu námstímann
- Minnkaðu námsálagið
Í hvaða námskeiðum er hægt að sækja um raunfærnimat í grafískri hönnun:
- Mörkun 5 ECTS
Í hvaða námskeiðum er hægt að sækja um raunfærnimat í fatahönnun:
-
Tískuteikning 2,5 ECTS
-
Prufusaumur og frágangur (hluti úr námskeiðinu Klæðskurður I) 2 ECTS
Skilyrði fyrir umsókn um raunfærnimat:
- Nemandi í grunnnámi í Listaháskólanum
- 25 ára eða eldri
- Þriggja ára samfelld starfsreynsla í faginu
- Starfsreynsla vottuð af vinnuveitanda
Ef þú telur þetta eigi erindi við þig máttu endilega hafa samband við náms- og starfsráðgjafa.
Hvernig þetta virkar:
- Þú fyllir út skimunarlista til að meta eigin færni í tengslum við raunfærnimatið
- Þú sendir inn ferilskrá, skimunarlista og vottorð frá vinnuveitanda
- Þegar gögn hafa verið staðfest ferðu í viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa
- Að lokum færðu boð um að koma í viðtal hjá matsaðila
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2025.
Nánari upplýsingar má fá hjá náms- og starfsráðgjafa í Listaháskólanum
Ragnhildur Ísleifs Ólafsdóttir, namsradgjof@lhi.is.