Seinni úthlutun Hönnunarsjóðs 2026 fór fram í Grósku þann 15. október þar sem 21 verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs hlutu styrk.
Meðal styrkhafa voru 5 starfsmenn úr okkar röðum, þau Anna Dröfn Ágústsdóttir fyrir bókina Hús, Arnar Már Jónsson fyrir verkefnið RANRA CONDITIONS, Birna Geirfinnsdóttir fyrir hönd Studio Studio, Björn Steinar Blumenstein fyrir þróunarverkefnið HVER og Sigmundur Páll Freysteinsson fyrir íslenska farahönnunarmerkið Blær. Ánægjulegt er að segja frá því að flest þeirra eru ekki aðeins starfsmenn skólans heldur einnig hollnemar.
Blær hlaut 3,5 milljóna króna styrk

Sigmundur Páll Freysteinsson hlaut 3,5 milljóna króna verkefnastyrk fyrir vörumerkið Blær. Blær er nýtt íslenskt fatamerki sem byggir á rannsóknum á textíl og handverki. Styrkurinn nýtist við þróun AW27 línunnar í samstarfi við handverksfólk og framleiðendur, uppbyggingu vörumerkisins og kynningu á HönnunarMars 2027.
Sigmundur Páll er fatahönnuður að mennt en hann stundaði grunnnám í fatahönnun hér í LHÍ og síðar meistaranám í Kyoto í Japan. Hann starfar nú sem verkefnastjóri rannsókna við LHÍ.
RANRA CONDITIONS hlaut 3,5 milljóna króna styrk

Arnar Már Jónsson hlaut 3,5 milljóna króna markaðs- og kynningarstyrk fyrir RANRA CONDITIONS. Verkefnið snýr að næsta skrefi í alþjóðlegri uppbyggingu vörumerkisins RANRA og tengir saman pop-up viðburði, innsetningar og alþjóðlega kynningu með áherslu á París og Ísland. RANRA hönnunarstúdíó er starfandi bæði í Reykjavík og London og er best þekkt fyrir vandaðan útivistarfatnað úr vistvænum efnum. Starfsemi RANRA hefur farið ört vaxandi vinnur nú að ýmsum verkefnum á sviði hönnunar.
Arnar Már Jónsson er aðjúnkt í fatahönnun við LHÍ en hann er jafnframt annar eigandi RANRA.
Hver: íslenskt timbur og jarðhiti hlaut milljón króna styrk

Björn Steinar Blumenstein hlaut eina milljón króna í rannsóknar- og þróunarstyrk fyrir verkefnið Hver þar sem íslenskar auðlindir og efniviður er nýttur við gerð húsgagna með sérstökum aðferðum. Íslenskt timbur er þá lagt í heitan hver og síðan gufubeygt með sérsmíðuðum mótum. Verkefnið rannsakar þannig staðbundna og óhefðbundna framleiðsluaðferð. Björn hefur unnið að hinum ýmsu verkefnum þar sem sjálfbærni og endurnýting er í forgrunni en sem dæmi rekur hann endurvinnslu- og hönnunarstúdíóið Plastpan.
Björn Steinar Blumenstein starfar sem fagstjóri vöruhönnunar við LHÍ.
HÚS – bókaútgáfa um íbúðarhús hlaut 500.000 króna styrk

Í úthlutuninni hlaut verkefnið HÚS – Bókaútgáfa um íbúðarhús 500 þúsund króna verkefnastyrk. Um er að ræða myndlýsta bók um íbúðarhús á Íslandi frá landnámi til samtímans þar sem byggingarsaga þjóðarinnar er sett fram í máli og myndum. Bókin er einskonar samfélagsspegill sem leiðir lesendur í gegnum íslenska byggingarsögu og kynnir 40 ólíkar byggingar sem hafa verið heimili íslendinga í gegnum aldirnar. Anna Dröfn Ágústsdóttir er annar höfundur bókarinnar ásamt Guðna Valberg.
Anna Dröfn lauk meistaranámi í sagnfræði og hagnýtri menningarmiðlun og starfar sem dósent við hönnunardeild LHÍ.
Studio Studio hlaut 300.000 króna styrk

Studio Studio hlaut 300 þúsund króna markaðs- og kynningarstyrk vegna verkefnis um grafíska hönnun Harðar Ágústssonar. Verkefnið varpar ljósi á þann hluta ferils hans sem sneri að grafískri hönnun, meðal annars bókakápum, firmamerkjum og auglýsingum. Birna Gerifinnsdóttir er annar eigandi Studio Studio og vann verkefnið ásamt Arnari Frey Guðmundssyni.
Birna Geirfinnsdóttir er prófessor í grafískri hönnun við LHÍ.
Við óskum styrkhöfum innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með framhaldinu