Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Verkið Stöng – (Endur)túlkun eftir SP(R)INT STUDIO, sem að Sahar Ghaderi, dósent og fagstjóri við LHÍ, og Karl Kvaran, stundakennari við skólann standa á bakvið, hefur hlotið 1. sæti í flokki Verkefni ársins í sjálfbærri endurnýtingu eða endurbótum (e. Best Sustainable Adaptive Reuse or Renovation Project of the Year) á Architizer A+Awards 2026.
Architizer A+Awards eru ein af stærstu arkitektúrverðlaunum heims og ná til yfir 400 milljóna manns. Verðlaunahafar eru valdir af dómnefnd arkitekta, hönnuða og leiðtoga úr menningar- og atvinnulífinu. Yfir þúsundum verkefna frá arkitektastofum í yfir 80 löndum taka þátt.
Um er að ræða hönnun og yfirbyggingu yfir uppgröft fornminja frá landnámstíð á Stöng í Þjórsárdal. Verkefnið er unnið í samstarfi arkitektastofunnar SP(R)INT STUDIO og Minjastofnunar Íslands.
Fyrir hefur verkefnið Stöng hlotið tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2025, Dezeen Awards, Archello Awards og hinna virtu Mies van der Rohe-verðlauna fyrir framúrskarandi samtímaarkitektúr í Evrópu. Verkið hlaut jafnframt Grænu skófluna 2025, veitta af Grænni byggð fyrir bestu endurbyggingu ársins.
Hér eru nánari upplýsingar um verðlaunatillöguna ásamt yfirliti yfir önnur verkefni