50% yfirferð 

Föstudaginn 13. nóvember fór fram yfirferð á helmingshluta doktorsverkefnis Berglindar Jónu Hlynsdóttur myndlistarmanns við myndlistardeild Listaháskólans. Þar kynnti Berglind niðurstöður fyrstu tveggja ára verkefnisins og sýningu sína í Listasafninu á Akureyri, 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar, og átti svo samtal við ytri matsmann þessarar stöðutöku, Magnus Bärtås myndlistarmann og aðstoðarrektor rannsókna og yfirmann doktorsnáms við Konstfack listaháskólann í Stokkhólmi. 

Berglind stundar nú doktorsnám innan pilot verkefnis sem Listaháskóli Íslands, Háskóli Íslands og Listasafn Íslands standa sameiginlega að. Verkefnið hlaut styrk til tveggja ára úr Samstarfi háskólanna á vegum Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytis árið 2024 og felur í sér nýja nálgun við doktorsnám annars vegar í hugvísindum, innan listfræða, og hins vegar þróunarverkefni um innleiðingu doktorsnáms í listum, byggt á aðferðum listrannsókna. Aðalleiðbeinandi Berglindar í verkefninu er dr. Bryndís Snæbjörnsdóttir, professor emerita við myndlistardeild Listaháskólans. Doktorsnefndin er  einnig skipuð þeim Magnus Bärtås, professor við Konstfack í Stokkhólmi, Jóhannesi Dagssyni, dósent við myndlistardeild, Æsu Sigurjónsdóttur og Benedikti Hjartarsyni, prófessorum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.