Misbrigði fór fram í tólfta sinn þriðjudaginn 3. nóvember þar sem nemendur á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands sýndu verk sín í Flóa í Hörpu. Í verkefninu fá notaðar flíkur og textíll nýtt líf í höndum nemenda sem kanna möguleika skapandi endurnýtingar og takast um leið á við áhrif fataiðnaðarins á samfélag og umhverfi.
Misbrigði er árlegt samstarfsverkefni LHÍ og Fatasöfnunar Rauða kross Íslands. Hver nemandi vinnur eigin fatalínu úr ósöluhæfum textíl frá Rauða krossinu og í sýningunni mátti sjá ólíkar nálganir nemenda að efniviðnum og persónulegar hugmyndir þeirra um form, áferð og endurnýtingu.
Eftirfarandi nemendur sýndu verk sín á sýningunni í ár:
Ástrós Eva Ellertsdóttir
Flóki Zink
Francis Edem Kumado
Guðmundur Tawan Víðisson
Hilmir Steinn
Isabelle Bailey
Jeanne d’Arc Sól Burgess
Lucija Bučan
Mia Polaskova
Ólafur Kári Kristjánsson
Ragnheiður Þorbjarnardóttir
Ljósmyndarinn Eygló Gísladóttir fangaði útkomuna, stemninguna og undirbúninginn en myndirnar má sjá hér að neðan.





















































