Í síðustu viku fór fram Sérverkefnavika við Tónlistardeild Listaháskóla Íslands þar sem nemendur fengu tækifæri til að kafa ofan í ólíka tónlistarheima, vinna með gestakennurum og prófa nýjar leiðir í tónlistarsköpun og samspili.

Að þessu sinni voru í boði fjölbreytt námskeið sem spönnuðu allt frá rússneskum rómönsum og suður-amerískri þjóðlagatónlist til gagnvirkrar tónlistar og rytmísks samspils.

Rússneskar rómönsur Rachmaninovs

Söng- og píanónemendur unnu rómönsur Sergeis Rachmaninovs undir handleiðslu Alexöndru Chernyshovu, þar sem áhersla var lögð á túlkun og blæbrigði tónlistarinnar. Námskeiðið gaf nemendum tækifæri til að kafa inn í rússneska sönghefð og uppgötva hvernig tónlist Rachmaninovs, með sínum sterku tilfinningum og ríka hljóðheimi, getur enn átt erindi við samtímann. Í lokin færðist vinnan úr kennslustofunni yfir á tónleikasviðið, þar sem afraksturinn var fluttur fyrir fullum sal.

Gagnvirk tónlist

Undir handleiðslu Jespers Pedersen unnu nemendur með gagnvirka tónlist sem átti sér stað víðs vegar um húsnæði tónlistardeildar. Þar gafst tækifæri til að kanna ýmsar leiðir til að skapa og upplifa tónlist.

Suður-amerísk þjóðlagatónlist

Á námskeiðinu kynntust nemendur þeim landfræðilegu, sögulegu og menningarlegu aðstæðum sem hafa mótað ólíkar tónlistarstefnur og stíla í Suður-Ameríku. Nemendur unnu með tónlist frá ólíkum löndum og æfðu saman verk sem tilheyra fjölbreyttum tónlistarhefðum álfunnar.

Rytmískt samspil

Samúel Jón Samúelsson leiddi námskeið þar sem nemendur fengu innsýn í tónlist hans og verk sem hafa haft áhrif á eigin tónsköpun. Áhersla var á tónlist af afríska tónlistarættartrénu, með viðkomu beggja vegna Atlantshafsins, allt frá nígerísku afróbít og eþíópískum djassi til afró-amerísks fönks og brasilískrar sömbu.

Sérverkefnavikan var fjölbreytt að vanda og gaf nemendum tækifæri til að nálgast tónlist frá ólíkum sjónarhornum, vinna saman og prófa nýjar leiðir.

Við endum að þessu sinni á orðum Sergeis Rachmaninovs um tónlistina:

„Tónlistin er nóg fyrir ævi, en ævi er ekki nóg fyrir tónlistina.“