Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Sérverkefnavika í tónlist

  • 2.október 2025

Sérverkefnavika í tónlistardeild Listaháskóla Íslands fór fram í síðustu viku og tókst með eindæmum vel. Nemendur fengu tækifæri til að vinna með kennurum og gestakennurum að fjölbreyttum verkefnum sem víkka sjóndeildarhring þeirra í tónlistarsköpun og flutningi.
Vikan endaði á uppskeruhátíð á föstudag þar sem gestir fengu smjörþefinn af því sem nemendur höfðu lært í vikunni, þar sem þrennir tónleikar gáfu innsýn í fjölbreytt og skapandi starf nemenda.

Á námskeiðinu Brú milli tveggja heima, fluttu nemendur rytmísku deildar íslensk þjóðlög í austrænum búningi og tónlist eftir Ásgeir J. Ásgeirssonar undir áhrifum heimstónlistar. Eftir það sýndu nemendur nýmiðlunar innsetningar og gjörninga víðs vegar í Skipholti undir handleiðslu Jespers Pedersen.

Þá sameinuðust nemendur á fyrsta ári í tónsmiðju undir tilsögn Óskars Guðjónssonar og Steindórs Grétars Kristinssonar og nemendur í söngnámsleið LHÍ fengu námskeið í óperuspuna undir leiðsögn Söru Wilén frá Tónlistarháskólanum í Malmö (Lund University).

Það má með sanni segja að sérverkefnavikan tókst með glæsibrag og gaf skýra mynd af því skapandi og lifandi starfi sem fer fram innan tónlistardeildar Listaháskóla Íslands.

Aðrar fréttir og greinar