Íslensku menntaverðlaunin voru veitt á Bessastöðum við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 11. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og er markmið þeirra að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Sandra Ómarsdóttir, kennari við Seljaskóla í Reykjavík, hlýtur verðlaunin í ár fyrir framúrskarandi starf á sviði sviðslistakennslu. Sandra útskrifaðist frá listkennsludeild LHÍ árið 2021 og starfar einnig sem stundakennari við listkennsludeild þar sem hún kennir kennslufræði sviðslista í grunnskólum.
Í umsögn sem fylgdi tilnefningu hennar segir meðal annars:
„Sandra á stóran þátt í að þjappa saman árgöngum með því að vinna með þeim stóru samvinnuverkefni sem allir eru stoltir af og hafa þar með gífurlega jákvæð áhrif á skólabrag. Henni tekst að virkja alla nemendur hvernig sem námsleg og félagsleg staða þeirra er. Með uppsetningum hennar á þessum frábæru sýningum þjappar hún líka saman foreldrahópnum og myndar jákvæð og skemmtileg tengsl á milli starfsmanna, nemenda og foreldra.“
Við óskum Söndru innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu!

Mynd: Mummi Lú