Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Samsýning meistaranema í myndlist opnuð í Nýló [Myndir]

  • 4.maí 2026

Samsýning  meistaranema í myndlist Setlög Ljóss og Tíma var opnuð í Nýlistasafninu laugardaginn 2. maí kl. 15. Á sýningunni sýna níu nemendur ný verk sem marka lok tveggja ára meistaranáms.

Verkin eru fjölbreytt að efni og miðlum og endurspegla rannsóknir og listræna þróun nemenda á námstímanum. Á sýningunni má meðal annars finna verk sem virkja mörg skynfæri, ljósmyndaverk sem fjalla um miðilinn í sögulegu og samtímalegu samhengi, málverk sem kanna mörk forms og skynjunar og verk sem vinna með efni úr náttúru og umhverfi listamanna.

Sýningin stendur opin til 17. maí á opnunartímum Nýlistasafnsins.

Meistaranemar 2026: Irene Hrafnan · Kristín Einarsdóttir Cavan · Lucrezia Costa · Marco Dorn · Mirjam Maeekalle · Sepideh Safiyari · Sarah Moore · Steinunn Önnudóttir · Svend Holmboe Pedersen

Sýningarstjóri: Sigrún Inga Hrólfsdóttir Fagstjóri meistaranáms: Hildur Bjarnadóttir

Myndir: Eygló Gísladóttir