Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Opnun á Útskriftarsýningu í Arkitektúr, Hönnun og Myndlist

  • 11.maí 2026

Laugardaginn síðastliðinn opnaði Útskriftarsýning í Arkitektúr, Hönnun og Myndlist í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.

Sýningin er ein sú fjölsóttasta ár hvert og stendur að þessu sinni til 17. maí.
Á sýningunni má sjá fjölbreytt útskriftarverk 88 nemenda í bakkalárnámi. Þúsundi manna heimsækja ár hvert þessa sýningu til að sjá verk tilvonandi arkitekta, hönnuða og myndlistarmanna sem eru að stíga út í heiminn með eigin rödd og sýn eins og rektor skólans tók svo réttilega til orða.

Kristín Eysteinsdóttir rektor LHÍ og Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur ávörpuðu gesti við opnunina. Markús bauð nemendur velkomna í safnið. Hann talaði sérstaklega um þann samskiptavettvang sem safnið er og hvatti nemendur til þess að nota tækifærið og hitta sýningargesti og ræða við þá um verk sín.

Kristín tólk meðal annars fram í ræðu sinni “Sýningin er bæði endapunktur og upphaf. Þið ljúkið krefjandi námi og stígið inn í líf þar sem sköpun, þekking og hugrekki ykkar skiptir máli hvort sem það er í starfi eða frekara námi. Haldið fast í forvitnina, leyfið ykkur að vera djörf og aldrei hætta að leita.”

“Í verkunum hér í dag mætast smáatriði og stórar hugmyndir: minningar sem verða að efni, tákn sem verða að kerfum og ljóðræna í rými og tíma.

Hugmyndir ykkar fá ólík form, en metnaður ykkar er sameiginlegur. Þið rýnið í skynjun og skráningu veruleikans, í vald og sýnileika og leitið leiða til að opna samtal um samkennd, ábyrgð og framtíð.

Sýningin er bæði endapunktur og upphaf. Þið ljúkið krefjandi námi og stígið inn í líf þar sem sköpun, þekking og hugrekki ykkar skiptir máli hvort sem það er í starfi eða frekara námi. Haldið fast í forvitnina, leyfið ykkur að vera djörf og aldrei hætta að leita.

Og til ykkar áhorfenda: gefið ykkur tíma til að njóta, hrífast með og staldra við. Merking verks verður til í samtali þess við áhorfandann, í því sem þið sjáið og finnið.

Að lokum: Takk kæru útskriftanemar fyrir að deila verkunum ykkar með okkur. Takk til kennara og leiðbeinenda fyrir fagmennsku, til sýningarstjóra og starfsfólks skólans fyrir styrku stoðina sem heldur öllu uppi, og til fjölskyldna og vina sem hafa staðið með ykkur. Og sérstakar þakkir færi ég Listasafni Reykjavíkur fyrir samstarfið.“

Fyrr um daginn var foropnun sýningar þar sem Kristín Eysteinsdóttir (Rektor Listháskóla Íslands), Logi Einarsson (Menningar-, nýsköðunnar- og háskólaráðherra), Heiða Björg Hilmisdóttir (borgarstjóri) og Daði Már Kristófersson (fjármála- og efnahagsráðherra) tilkynntu að þau væru að skrifa undir viljayfirlýsingu um að Stakkahlíð 1 verði framtíðar húsnæði skólans þar sem allar deildir munu sameinast undir einu þaki.

Það er hefð á foropnun að forsvarsmenn deilda taki til orðs og meðal annars þakka nemendum , starfsfólki og sýningarstjórum fyrir. Guja Dögg Hauksdóttir ávarpaði nemendur í ár fyrir hönd arkitektúrdeildar.
Katrín Ólina, deildarforseti Hönnunardeildar, var með skilaboð til nemenda í sinni ræðu
“…. Nú standið þið hér. Með verk sem mæta heiminum. Og með ykkar rödd.
Hún er ekki fullmótuð. Hún á eftir að þroskast þroskast. En hún styrkist ekki með því að bíða.
Hún styrkist með þátttöku. Með því að taka afstöðu. Með því að vinna í heimi sem er flókinn, óviss og síbreytilegur.
Þið hafið lært að skapandi vinna er ekki línuleg. Við vitum ekki alltaf hvert skal haldið.
En við leggjum af stað. Tökum eina ákvörðun og svo þá næstu. Og smám saman verður eitthvað til.
Svo haldið þið áfram að spyrja. Hlusta. Æfa ykkur. Og móta.
Finnið ykkar leið og látið hana hafa áhrif.”

Að lokum tók Bjarki Bragason, forseti myndlistardeildar til máls þar sem hann heilsaði nemendum sínum á fimm tungumálum og óskaði nemendahópnum til hamingju með áfangann á móðurmálum þeirra sem undirstrikar fjölbreytileika hópsins sem kemur víða að.

Bjarki minntist á hugðarefni nemenda á sýningunni, sem snerta á spurningum um stöðu manneskjunnar innan þeirra kerfa sem hún hefur búið sér til, mannöldinni sem við lifum á þar sem mennskar gjörðir hreyfa til meira efni heldur en kerfi Jarðar, tengsla dýrategunda, skynjunar, hverfulleikans, sambands efna, barnæskunnar innra með okkur, hjátrúar og hugmynda um staðreyndir. Nemendur voru hvött til að halda áfram vegferð sinni, finna sitt samhengi og þau tengsl sem þau þarfnast til að finna listrænum, pólitískum og samfélagslegu áherslum farveg. Í lokin var Arnari Ásgeirssyni sýningarstjóra myndlistarhluta útskriftarsýningarinnar þakkað fyrir sinn þátt í að búa þeim 29 ólíku verkum sem á sýningunni eru stað, kennurum deildarinnar, leiðbeinendum, stundakennurum og gestum, starfsfólki verkstæða og skólans alls fyrir þá mikilvægu vinnu sem á sér stað í því vistkerfi sem listaháskóli er og minnti á það fjöregg sem við eigum í samfélagi skólans.

Sýningastjórar í ár voru þau
Anna Kristín Karlsdóttir og Jan Dobrowolski fyrir arkitektúr.
Arnar Már Jónsson fyrir fatahönnun
Björn Steinar Blumenstein fyrir vöruhönnun
Hrefna Sigurðardóttir fyrir grafíska hönnun
Arnar Ásgeirsson fyrir myndlist

Verkefnastjóri: Tinna Pétursdóttir
Myndir: Eygló Gísladóttir