Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Ólafur Helgi Móberg Ólafsson – viðtal

  • 7.janúar 2026

Ólafur Helgi Móberg Ólafsson er meistaranemi í listkennslufræðum við listkennsludeild Listaháskóla Íslands.

 

„Ég er alinn upp í Laugarnesi og bjó á Kleppsvegi. Æskuárin átti ég í Laugarnesskóla og síðan Laugarlækjarskóla. Í Laugarlækjarskóla kviknaði áhugi minn á leiklist og þaðan lá leiðin í Fjölbrautaskólann í Breiðholti (FB) þar sem leiklistaráhuginn fékk að blómstra. Ég fór á handíðabraut í FB, sem kveikti áhuga minn á búningahönnun og tísku,“ segir Ólafur en hann hefur einnig lengi haft mikinn áhuga á leiklist og dragi.

„Árið 2002 lét ég verða af því að kalla mig dragdrottningu og síðan skapaði ég karakterinn Starínu. Ég hef verið dragdrottningin Starína um 23 ár, en undanfarin ár hef ég einbeitt mér að því að lesa barnabækur fyrir börn á bókasöfnum og við ýmsa aðra viðburði um land allt í gervi Starínu.“

 

Mynd: Borgarbókasafnið

 

Árið 2009 lauk Ólafur stúdentsprófi og hélt þá til Mílanó í hönnunarnám við skólann Nuova Accademia di Belle Arti (NABA), þaðan sem hann útskrifaðist með bakkalárgráðu í tískuhönnun árið 2013.

„Eftir námið flutti ég aftur til Íslands og vildi dýpka kunnáttu mína í saumaskap. Ég hóf nám í kjólasaumi við Tækniskólann og fékk í kjölfarið vinnu hjá Þórunni Sigurðardóttur kjólameistara, sem þá rak Brúðakjólaleigu Katrínar. Þar starfaði ég í átta ár og lauk burtfararprófi í kjólasaumi árið 2022.“

 

Lokaverkefni NABA: Starina Couture 2013

 

Eftir að Ólafur lauk störfum hjá Brúðakjólaleigu Katrínar langaði hann að einbeita sér meira að draginu.

„Ég fann hins vegar fyrir ákveðnum sköpunarþurrki, eða þörf fyrir nýjar áskoranir, og líkamlegir erfiðleikar fóru að láta á sér kræla þar sem hreyfigeta mín versnaði. Eftir að ég byrjaði að lesa fyrir börn sem Starína hefur mig ávallt langað til að skrifa barnabók eða setja upp barnaleikrit. Ég velti fyrir mér hvernig boðskapur ætti að vera í slíku verki.

Margir höfðu orð á því við mig að þrátt fyrir hreyfihömlunina væri ég með einstaka tækniþekkingu í textíl og hönnun. Ég ætti auðvelt með að útskýra handtökin fyrir öðrum og miðla þekkingunni, jafnvel þótt hreyfihömlunin geri mér stundum erfitt fyrir að framkvæma ákveðna hluti sjálfur. Það ýtti mér út í að skoða kennsluna,“ segir Ólafur en upplifun hans á náminu í listkennsludeild hefur verið mjög valdeflandi.

 

Mynd: David Terrazas

 

„Eftir að hafa komið lengi fram sem dragdrottning, en aldrei litið á það sem mína listgrein, því það hefur allt verið þannig að ég þarf að vera tískuhönnuður, myndlistamaður eða leikari, hafa þau í listkennsludeild hafa hvatt mig mjög mikið áfram í því að að líta á drag sem mína listgrein og eins hvernig get ég notað drag til að miðla þekkingu áfram.“

Námið hefur kennt Ólafi að horfa á listsköpun og hönnun í víðara samhengi.

„Þrátt fyrir að líkamlegar áskoranir hafi breytt því hvernig ég vinn með höndunum, hefur námið sýnt mér að hæfni mín til að leiðbeina og kveikja áhuga hjá öðrum er jafnvel dýrmætari en handverkið sjálft,“ segir Ólafur sem sér fyrir sér fyrir sér að nýta námið til að brúa bilið á milli fatahönnunar, handverks og sviðslista.

„Mig langar að starfa við listmiðlun þar sem ég nýti dragið sem öflugt verkfæri til að hjálpa öðrum að finna sjálfstraust, tungumál og kjark til að skilja eigin sjálfsmynd betur. Dragið er nefnilega listform þar sem allar mínar ástríður sameinast; litir, sagnagerð, tónlist og búningar í algjöru frelsi.“

Ólafur Helgi brennur sérstaklega fyrir því að sýna að listnám og handverk séu aðgengileg öllum, óháð líkamlegri getu.

„Ég hef sjálfur mætt fordómum og veit að lífið er flókið og hindranir geta verið stórar, en ég vil kenna öðrum að skrifa sína eigin sögu og vera trú sjálfum sér. Boðskapur minn snýst um að mæta heiminum af kærleika, ró og húmor.

Kennsluréttindin munu gefa mér fagleg tæki til að þróa námskeið og verkefni sem sameina tækniþekkingu og leikræna tjáningu. Mig langar að sýna að sérhver einstaklingur hafi óendanlega möguleika og kraft til að umbreyta lífi sínu með kjarki, sköpunargáfu og góðvild. Markmið mitt er að sýna börnum og fullorðnum að ástin er alltaf sterkari.“

 

Mynd: Erna Lóa Guðmundsdóttir

 

Framundan eru spennandi tímar á nýjum stað.

„Ég og kærastinn minn fluttum nýverið til Búðardals ásamt hundinum okkar, en kærastinn minn hóf störf þar sem tónlistar- og tónmenntakennari. Ég hlakka til að kynna Starínu fyrir nýju samfélagi og halda áfram að lesa fyrir börn á bókasöfnum og viðburðum, en nú með dýpri skilning á uppeldis- og kennslufræði í farteskinu. Í gegnum Starínu vil ég áfram miðla þeirri gleði og mýkt sem hún stendur fyrir.“

Ólafur ætlar að nýta kyrrðina í Dölunum og það sem eftir er af náminu til að leggja grunninn að stóra markmiðinu sínu; að skrifa barnabók eða hanna barnaleikrit.

„Þar vil ég flétta saman handverki, fjölbreytileika og þeim mikilvæga boðskap að allir hafi kraft til að birta sitt sanna eðli ófeimnir. Mig langar að nota þetta verk til að sýna að þótt lífið sé flókið og hindranir geti verið stórar, þá getum við alltaf skrifað okkar eigin sögu og mætt heiminum með von og samkennd.

Það er Ólafi mikilvægt að koma því á framfæri að listin á sér engin takmörk.

„Þótt hreyfihömlun geti breytt vinnulagi, þá stoppar hún ekki sköpunarkraftinn. Ég hlakka til að vera fyrirmynd fyrir aðra sem vilja finna sínar eigin leiðir í listum og sýna að það eru margar leiðir til að vera „meistari“ í sínu fagi.“

 

Mynd: Eva Ágústa Aradóttir

 

Titilmynd greinar: David Terrazas