Bókin BirkiVist – BirkiVera: Birki í menningu, listum og lífinu kom út á dögunum. Um er að ræða greinasafn í ritstjórn Guðbjargar R. Jóhannesdóttur, prófessors við listkennsludeild Listaháskóla Íslands, og Auðar Aðalsteinsdóttur. Bókin er annað bindi ritraðarinnar Huldurit, sem helguð er umhverfishugvísindum.
Í bókinni fjalla fræða- og listafólk um fagurferðilegt, menningarlegt og samfélagslegt gildi birkis og veita innsýn í upplifun fólks af birkiskógum. Ritin í Hulduritum eru innlegg í samtímaumræðu um tengsl manns og náttúru á tímum loftslagsvanda og taps á líffræðilegri fjölbreytni.

Birki í menningu, listum og lífi
Í greinasafninu er tekist á við spurningar á borð við: Hvernig birtist birkið í bókmenntum okkar og listum? Hvernig upplifum við birkiskóga og hvaða gildi hefur sú upplifun? Hvernig tengjumst við birkinu og vinnum með það sem efnivið? Hvernig speglum við okkur sjálf og tilveru okkar í birkinu? Og hvaða máli skipta menningarleg tengsl okkar við það fyrir endurheimt birkiskóga? Lesendur eru þannig leiddir inn í þann menningarheim sem orðið hefur til í samvistum birkis og mannfólks á Íslandi.Bókin er meðal annars sprottin af málþinginu BirkiVist: Birki í menningu, listum og lífinu, sem haldið var í Norræna húsinu 29. ágúst 2025. Þar voru kynntar niðurstöður þess hluta verkefnisins sem snýr að samfélagslegu, menningarlegu og fagurferðilegu gildi birkis. Málþingið var haldið á vegum þverfræðilega rannsókna- og þróunarverkefnisins BirkiVist: Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld – áskoranir, leiðir og ávinningur. Markmið verkefnisins er að þróa skilvirkar leiðir til endurheimtar birkiskóga á landsvísu. Þar er meðal annars fjallað um hindranir og tækifæri fyrir náttúrulegt landnám birkis og áhrif samfélagslegra þátta á endurheimt þess. Verkefnið er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Lands og skógar. Innan Listaháskólans hefur listkennsludeild tekið þátt í verkefninu ásamt námsbraut í vöruhönnun.

Sófaspjall í tilefni útgáfunnar
Á dögunum var boðið til sófaspjalls í Loftskeytastöðinni í tilefni af útgáfunni þar sem Guðbjörg, Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki við HÍ, Hafdís Hanna Ægisdóttir, plöntuvistfræðingur og forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ og Ása L. Aradóttir, prófessor í plöntuvistfræði við HÍ áttu gott spjall um efni bókarinnar ásamt góðum hópi gesta.