Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Sýningin Nýir möguleikar / New Environments, lokaverkefni meistaranema í MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands, var opnuð á laugardag í Herma gallerí við Hverfisgötu. Á sýningunni kynna tólf útskriftarnemar fjölbreytt verkefni sem takast á við samtímann með gagnrýnni, rannsóknarmiðaðri og skapandi nálgun.
Útskriftarnemendur í ár eru: Andrea Ugolini, Anna Wallenius, Jacqueline König, Janek Beau, Katla J.R. Taylor, Linea Walker-Friedrichs, Max Greiner, Muhammad Hamza Khan, Natalia Grociak, Sun Menguyan, Tumi Bjartur Valdimarsson og Yasemin Kapkin.
Verkin fjalla meðal annars um staðbundin efni og handverk, nýtingu úrgangs og vanmetinna auðlinda, tengsl manns og náttúru í hraða upplýsingasamfélagsins og inngildandi hönnun í félagslegu rými. Á sýningunni má sjá frumgerðir, gagnvirkar innsetningar, samstarfsverkefni við samfélag og stofnanir, auk frásagnarkenndra hönnunarverka og texta sem setja verkefnin í samhengi.
Sýningin stendur opin til laugardagsins 23. maí.
Myndir: Eygló Gísladóttir