Söngkeppnin Vox Domini, á vegum Félags söngkennara á Íslandi, fór fram í Salnum í Kópavogi í gær, sunnudaginn 15.mars. Sérstaklega ánægjulegt var að allir verðlaunahafar í háskólaflokki keppninnar eru söngnemendur við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Í fyrsta sæti varð Beinta Ingeborg Greve, sem er á öðru ári í söngnámi við tónlistardeild LHÍ. Hún heillaði bæði dómnefnd og áhorfendur með glæsilegum og fáguðum söng, auk líflegrar framkomu og sterkrar útgeislunar á sviðinu.
Í öðru sæti varð Guðrún Margrét Halldórsdóttir, nemandi á fyrsta ári í söng við LHÍ. Guðrún stóð sig afar vel í keppninni og hlaut einnig sérstök verðlaun fyrir flutning sinn á sönglagi eftir Jón Ásgeirsson.
Í þriðja sæti varð Guðný Guðmundsdóttir, nemandi á þriðja ári í söng við LHÍ. Hún vakti athygli fyrir glæsilegan flutning á aríu Rosalinde (Czardas) úr Leðurblökunni eftir Johann Strauss.
Kennarar í söngnámi við tónlistardeild LHÍ eru Dísella Lárusdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Kristinn Sigmundsson og Matthildur Anna Gísladóttir.
Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur, framtíðin er ykkar.