Nemendur og hollnemar Listaháskóla Íslands láta víða að sér kveða í íslensku tónlistarlífi.

Það sést meðal annars á dagskrá Iceland Airwaves, sem fer fram í Reykjavík 4.– 8. nóvember. Yfir 100 listamenn koma fram á sjö sviðum á aðaldagskrá hátíðarinnar.

Nemendur LHÍ koma úr ólíkum áttum og fást við fjölbreytta tónlist, allt frá indípoppi og raftónlist til tilraunatónlistar. Breski tónlistarmiðillinn The Line of Best Fit hefur að undanförnu fjallað um nokkra þeirra og íslenskt tónlistarlíf.

Andervel: Frá Mexíkó til Fríkirkjunnar

José Luis Anderson kemur fram undir listamannsnafninu Andervel. Hann er frá Querétaro í Mexíkó og kom til Íslands til að stunda meistaranám í New Audiences and Innovative Practice, NAIP, við tónlistardeild LHÍ og lagði einnig stund á tónsmíðar við skólann. Í viðtali við The Line of Best Fit segir hann að meðal þess sem dró hann til Íslands hafi verið tækifærið til að gefa sér tíma og svigrúm til að þroskast sem listamaður.

Fyrsta plata Andervel, Ironclad and Palm Trees, ber með sér áhrif úr ólíkum menningarheimum. Þrjú af sjö lögum plötunnar eru sungin á íslensku og sækja innblástur í ljóð Huldu og Jóhanns Sigurjónssonar.

Á Iceland Airwaves kemur Andervel fram í Fríkirkjunni í Reykjavík ásamt kórnum Klið. Kirkjan hafði sérstaka merkingu fyrir hann þar sem hann setti mynd af henni sem screen safer á símanum sínum þegar hann fékk boð um skólavist hjá LHÍ „It became a symbol of Reykjavík for me – I saw it and thought ‘I’m going there’“.

Ný kynslóð á svið

The Line of Best Fit kynnti nýverið fimmtán listamenn og hljómsveitir úr íslensku tónlistarlífi sem koma fram á Iceland Airwaves í fyrsta sinn undir núverandi nafni. Tónlist þeirra spannar meðal annars popp, þjóðlagatónlist, raftónlist og tilraunatónlist.

Í hópnum er fjöldi núverandi nemenda og hollnema LHÍ. Þar á meðal eru Erla Hlín Guðmundsdóttir Jörgensen og Baldur Skúlason í Amor Vincit Omnia, Bjarni Daníel Þorvaldsson, Sævar Helgi Jóhannsson, Kári Hrafn Guðmundsson í Marsibil og Jón Logi Pálmason og Ásgeir Kjartansson í BKPM.

Spider Network: tilraunatónlist í brennidepli

Tilraunatónlistarhópurinn Spider Network er gott dæmi um það sem verður til í kringum skólann. Hópurinn á rætur sínar að hluta í Skerplu og NAIP.

Í honum eru bæði núverandi nemendur og hollnemar LHÍ. Þar á meðal eru nemendurnir Eva Yuki Mik og Oscar Brillet, hollnemar tónlistardeildar Ronja Jóhannsdóttir, Konrad Stanislaw Groen og Masaya Ozaki, og Iuliia Vasileva, núverandi nemandi í myndlist.  

Spider Network gefur út tónlist, stendur fyrir viðburðum og er skapandi stuðningsnet fyrir listafólk og hefur vakið athygli fyrir tilraunakennda nálgun. Hópurinn stendur fyrir tónleikum, gjörningum og öðrum viðburðum þar sem tilraunir og samstarf eru í fyrirrúmi. The Line of Best Fit  fjallaði ítarlega um Spider Network í september og um stöðu hópsins í tilraunatónlistarlífi Reykjavíkur. Í ágúst kom hópurinn meðal annars fram á Echolalia-hátíð Bjarkar, þegar sólmyrkvi gekk yfir. 

Rými til að finna eigin rödd

Í tónlistardeild LHÍ leggjum við áherslu á að innsæi og forvitni séu drifkraftur sköpunar. Námið miðar að því að efla sjálfstæði nemenda, auka þekkingu þeirra og færni og búa þá undir fjölbreytt störf í tónlist. Áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, skapandi hugsun og þverfaglegt samstarf er jafnframt ríkur þáttur í kennslustefnu deildarinnar.

Námsleiðirnar Tónsmíðar (BA og MA), Tónlist Nýsköpun Tækni B.Mus (TNT) og New Audiences and Innovative Practice – NAIP M.Mus endurspegla þessa breidd. Í tónsmíðanáminum þróa nemendur eigin listræna rödd og tónsköpun. TNT er ætlað að mæta fjölbreyttum þörfum nútímatónlistarfólks og í NAIP er áhersla lögð á nýskapandi og þverfagleg vinnubrögð.

Árangurinn má heyra víða í íslensku tónlistarlífi og meðal annars á sviðum Iceland Airwaves.