Námið er hagnýt námsleið fyrir þau sem hafa áhuga á að kynnast leiðum til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar og hafa lokið bakkalárgráðu í listum eða í öðrum greinum; svo sem heilbrigðisvísindum eða félagsvísindum ásamt talsverðri menntun og/eða reynsla í einhverri listgrein. Áhugi og reynsla af vinnu með viðkvæmum hópum er skilyrði. Við útskrift fá nemendur viðbótardiplóma (6.1). 60 einingar
Viðbótardiplómunám í listum og velferð er hagnýt námsleið miðar að því að leiða saman breiðan hóp fagfólks sem hefur áhuga á að kynnast leiðum til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar. Markmiðið með náminu er að gefa innsýn í möguleika til að efla aðgengi og þátttöku ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum.
Umsóknar- og inntökuferli
Allar umsóknir um nám fara í gegnum umsóknargátt og munu öll samskipti varðandi umsóknarferlið fara þar fram. Umsóknargjaldið er greitt í seinasta skrefi rafrænu umsóknarinnar og er 5.000 kr.
Innritaðir og brautskráðir nemendur sem eru með Ugluaðgang þurfa einnig að stofna sérstakan aðgang í samskiptagátt þegar sótt er um nýtt nám.
Í rafrænu umsókninni gefst umsækjanda kostur á að tilgreina ástæður umsóknar, markmið, framtíðarsýn, áherslugrein og fleira í stuttum texta. Umsækjendur fá staðfestingu á því að LHÍ hafi móttekið umsóknina eftir að gengið hefur verið úr skugga um að umsækjandi hafi skilað inn öllum nauðsynlegum fylgiskjölum. Í listkennsludeild eru nemendur teknir inn einu sinni á ári og hefja nám á haustönn.
Ef fjöldi umsækjenda sem standast inntökukröfur námsleiða er undir lágmarksviðmiðum verður ekki tekið inn á námsleið fyrir komandi skólaár. Eru umsækjendur upplýstir um slíkt eins fljótt og auðið er og skrásetningargjald endurgreitt, hafi það verið greitt.
Til að umsókn sé fullgild þarf að greiða umsóknargjald og eftirfarandi gögn þurfa að berast Listaháskólanum:
Skylda 1. Staðfest afrit af prófskírteinum
Staðfest afrit af prófskírteinum, svarthvítt ljósrit gildir ekki.
Skylda 2. Umsagnir tveggja meðmælenda
Umsækjendur eru beðnir um að skrifa nöfn og netföng tveggja umsagnaraðila í þar til gerðan reit í umsókninni. Æskilegt er að annar umsagnaraðili tengist námi og hinn vinnu.
Haft verður samband við meðmælendur og óskað eftir meðmælum eftir þörfum.
Skylda 3. Greinargerð: Ástæður umsóknar
Í þessari greinagerð eru umsækjendur vinsamlegast beðnir um að gera grein fyrir því;
a. hvaða þýðingu þeir telja að námið hafi fyrir sig,
b. hvað þeir telja eftirsóknarvert við nám í menntunarfræðum listgreina og listum í skólastarfi.
c. hvaða kosti umsækjandi hefur til að bera sem líklegt er að muni koma sér vel í kennslu og miðlun.
Hámarks lengd er 300 orð.
Skylda 4. Ferilskrá (CV)
Ferilskrá með almennum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja umsókn. Ferilskrá skal innihalda yfirlit yfir menntun, störf, tungumálagetu og aðra reynslu sem umsækjandi telur að nýtist í náminu. Ferilskráin ætti ekki að vera lengri en tvær síður.
Almenn inntökuskilyrði:
Almenn inntökuskilyrði eru bakkalárgráða eða sambærilegt háskólanám sem byggir undir hæfni umsækjanda til að svara þeim kröfum sem meistaranámið gerir. Umsóknum skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum ásamt öðrum gögnum sem óskað er eftir af hálfu viðkomandi deildar. Inntökunefndir meta umsóknir á grundvelli innsendra gagna og viðtala við umsækjendur. Deildarforseti skipar inntökunefndir í samráði við fagstjóra og vinna nefndir eftir verklagsreglum sem kynntar eru umsækjendum. Úrskurður inntökunefnda er endanlegur.
Inntökuferli
Umsækjendur sem uppfylla öll inntökuskilyrði námsleiðar eru boðaðir í inntökuviðtal.
Umsækjendur þurfa ekki að hafa með sér gögn í inntökuviðtal nema þeirra sé sérstaklega óskað af inntökunefnd.
Inntökunefnd listkennsludeildar fer yfir umsóknir og velur umsækjendur sem fá boð um skólavist.
Þeir umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta hvort þeir hyggist taka því með því að greiða skrásetningargjald fyrir komandi skólaár.
Úrskurður inntökunefndarinnar er endanlegur og er inntökunefnd ekki skylt að gefa nánari skýringar á úrskurði sínum.
Tungumálakunnátta
Meistaranám í listkennsludeild er nám sem kennt er á íslensku nema um erlenda gestakennara sé að ræða, þá fer kennsla fram á ensku. Umsækjendur þurfa að vera vel færir um að tjá sig munnlega og skriflega á íslensku í samræmi við kröfur í háskólanámi.
Íslenskukunnátta umsækjenda þarf að vera að lágmarki á stigi B2 samkvæmt skilgreiningu samevrópska matsrammans fyrir tungumál. Sjálfsmatsrammann má nálgast hér.
Lykilfrestir
- 14. janúar 2026 Umsóknarvefur opnar
- 13. apríl 2026 Lokafrestur umsókna
- Maí 2026 Svör send umsækjendum
Sæktu um nám við Listir og velferð – Viðbótardiplóma.
Kynntu þér umsóknarferlið og næstu skref.