Vikuna 25. – 31.október 2026 fóru 2.árs nemendur í meistaranáminu Listir og velferð í námsferð til Írlands. Heimsóknin er hluti af námskeiðinu Tilraunastofan II, sem er skyldunámskeið á þriðja misseri. Námskeiðið er vettvangur þar sem gestafyrirlesarar og listamenn, sem starfa á vettvangi tengdum velferð, samfélagsverkefnum og þátttökulistum, miðla reynslu sinni og þekkingu til nemenda og kennara. Meginmarkmið þessarar ferðar var að bjóða nemendum upp á vettvang og samstarf við aðra nemendur og reynslumikla kennara, sem starfa á sviði lista og velferðar.
Hópurinn heimsótti háskólann í Limerick (https://www.ul.ie/) og fékk þar sérlega hlýjar og hvetjandi mótttökur. Hópuirnn vann meðal annars með meistaranemendum og kennurum í námsleiðinni Community music. Þá var heilsdagsvinna með meistara- og doktorsnemum í dansi undir handleiðslu dr. Jenny Roche, þar sem áhersla var lögð á somatic hreyfivinnu. Sú nálgun byggir á tengingu hugar og líkama, með það að markmiði að losa um líkamlega spennu, streitu og áföll sem hafa sest að í taugakerfinu. Jenny hafði einnig milligöngu um að hópurinn fékk mjög líflegan og upplýsandi fyrirlestur um rannsóknarstarf og hreyfivinnu með fólki með parkisons, sem dr. Orfhlaith Ni Bhríain hefur unnið í samstarfi við heilbrigðisvísindasvið háskólans.
Þá fengu nemendur sérstaka kynningu frá deildarstjóra The Irish World Academy of Music and dance (https://www.ul.ie/irish-world-academy/about), dr. Helen Phelan, sem meðal annars rekur The Irish World Music Café þar sem nýbúar hittast einu sinni í viku og syngja með heimafólki.
Eftir samveru og söng með fólki af ýmsum þjóðernum í Limerick hélt hópurinn út í sveit þar sem Marta Fabregat (https://martafabregat.com/) leiddi hópinn í fókusing skógargöngu með nálgun sem hún kallar sensed ecology. (https://sensedecology.com/)
Þessi samræða og miðlun reynist afar verðmæt fyrir nemendur og kennara við námslínuna „Listir og velferð“ sem er núna á sínu þriðja ári. Það var samdóma álit nemenda og kennara að Írar séu ekki einungis framarlega í að þróa listtengda viðburði fyrir viðkvæma hópa heldur eru þeir einstaklega gestrisnir og auðfundið að sterk tengls eru milli Íslendinga og Íra.