Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Málþing um jafnt aðgengi að listnámi – fjölbreyttur hópur kom saman í Borgarleikhúsinu 

  • 4.nóvember 2025

**** Auðlesin útgáfa neðar *******

Síðustu helgi stóð Listaháskóli Íslands, í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, ÖBÍ réttindasamtök, Þroskahjálp og Borgarleikhúsið, fyrir málþingi undir yfirskriftinni „Jafnt aðgengi fatlaðs fólks að listnámi“. Málþingið var haldið í Borgarleikhúsinu og mættu um 60 einstaklingar til að hlusta og taka þátt í umræðum um mikilvægi aðgengis í listnámi.

Málþingið var hluti af samstarfsverkefninu Inngildandi nám á háskólastigi, sem styrkt er af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Dagskráin var fjölbreytt og tók á lykilatriðum eins og hindrunum og tækifærum innan listnáms, réttindabaráttu og mátt listarinnar, sveigjanlegu námi og ráðleggingum til LHÍ um næstu skref.

Þátttakendur voru meðal annars fatlað fólk með reynslu af menntakerfinu, listafólk – bæði fatlað og ófatlað – og starfsfólk LHÍ.

Stjórnendur málþingsins voru Hekla Björk Hólmarsdóttir, ráðgjafi í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og aðjúnkt við HÍ, og Þóra Einarsdóttir, aðstoðarrektor náms og kennslu hjá LHÍ.

 

Á meðal þeirra sem tóku til máls voru:

  • Dagbjört Andrésdóttir, söngkona og aktivisti
  • Egill Heiðar Anton Pálsson, leikhússtjóri Borgarleikhússins
  • Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, listakona
  • Fabiana Morais, talskona fatlaðs fólks hjá Þroskahjálp
  • Hekla Björk Hólmarsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands og ráðgjafi hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu
  • Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, sviðshöfundur og listanorn
  • Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
  • Ólafur Snævar Aðalsteinsson, frístundaleiðbeinandi í Hinu húsinu og listamaður
  • Þóri Gunnarsson (Listapúki), myndlistarmaður
  • Fulltrúar Listvinnzlunnar: Elín Sigríður, María Ólafsdóttir, Kolbeinn Jón Magnússon, Þórir Gunnarsson, Elín Fanney Ólafsdóttir, Margrét M. Norðdahl

Dagskráin innihélt opnun, ávörp, sófaspjall, ljóðalestur, umræðu um artivisma og mátt listarinnar, og samantekt um næstu skref. Málþinginu lauk með eftirminnilegu myndbandi og lokaorðum frá Átak.

Málþingið var vel heppnað og skapaði vettvang fyrir mikilvægar og áhrifaríkar umræður um það hvernig tryggja megi að listnám sé raunverulega aðgengilegt öllum.

Skilaboð þátttakenda voru skýr: Viðhorf þurfa að breytast og gera þarf ráð fyrir, og fagna, fjölbreytileika í námi. Listnám á háskólastigi á að vera fyrir öll.

 

Ljósmyndari: Eygló Gísladóttir

Auðlesin útgáfa

🔹 Lista·haskólinn hélt málþing 

Þetta málþing var um:  

háskóla·nám fyrir fólk með þroskahömlun. 

Lista·háskólinn fékk aðstoð frá: 

  • Háskóla Íslands (HÍ). 
  • Háskólanum á Akureyri (HA). 
  • ÖBÍ réttindasamtök. 
  • Borgar·leikhúsinu. 

Lista·háskólinn vinnur líka verkefni með HÍ og HA. 

  • Verkefnið er um háskóla·nám fyrir fólk með þroskahömlun. 
  • Háskóla·ráðuneytið styrkir verkefnið. 

 

💬 Um hvað var talað á málþinginu? 

  • Af hverju er menntun mikilvæg? 
  • Af hverju er fátt fatlað fólk í Lista·háskólanum? 
  • Hvað þarf Lista·háskólinn að gera til þess að fatlað fólk geti komið í skólann? 

 

💬 Hvað sögðu þátttakendur? 

  • Fólk þarf að hugsa öðruvísi um fatlað fólk og menntun. 
  • Nám er betra ef það eru alls·konar nemendur 
  • Öll eiga að geta farið í Lista·háskólann.