Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Kvikmyndanemar LHÍ á Nordic Film Market í Gautaborg

  • 6.febrúar 2026

Nemendur á þriðja ári í kvikmyndalistadeild Listaháskóla Íslands tóku nýverið þátt í Göteborg Film Festival og Nordic Film Market í Gautaborg, einum mikilvægasta viðburði norræns kvikmyndaiðnaðar. Þátttakan er árlegur liður í starfi deildarinnar og markar mikilvægt skref í að tengja nemendur við fagumhverfið.

Nemendur frá ýmsum norrænum kvikmyndaskólum tóku þátt í fimm daga námskeiði undir heitinu Entering the Industry, námskeiði í samstarfi við Nordicil, samstarfsnet norrænna kvikmyndaskóla. Meðal samstarfsskóla eru LHÍ,  Den Danske Filmskole, Den Norske Filmskolen, Stockholm University of the Arts og HDK-Valand (Háskólinn í Gautaborg) sem voru einnig gestgjafar hátíðarinnar.

Í ár tóku yfir 150 nemendur þátt og fengu innsýn í starfsemi kvikmyndahátíða, starfshætti og tengslanet í kvikmyndaiðnaðinum á Norðurlöndum. Á námskeiðinu sóttu nemendur fyrirlestra og málstofur með leiðandi fagfólki úr greininni, þar á meðal kvikmyndablaðamanninum Wendy Mitchell, pitch-þjálfurunum Valeriu Richter og Helene Granqvist, leikstjóranum Ruben Östlund og Johanna Koljonen sérfræðing og greinanda á kvikmyndaiðnaði.

Josef Kullengard

Í ár var jafnframt haldinn nýr viðburður á Nordic Film Market undir heitinu New Nordic Voices, þar sem kvikmyndanemar kynntu verkefni sín fyrir fagfólki úr greininni. Valinn var einn fulltrúi frá hverjum þátttökuskóla og fengu þau faglega pitch-þjálfun dagana fyrir viðburðinn.

Elizabeth Karen Guarino, var fulltrúi LHÍ og kynnti þar verkefnið Cardio Bunny. Þátttaka í viðburðum á borð við Nordic Film Market og New Nordic Voices endurspeglar þá áherslu sem lögð er á að styðja nemendur í að stíga fyrstu skrefin inn í alþjóðlegt fagumhverfi og styðja við framtíð þeirra í kvikmyndagerð.

Elizabeth Karen Guarino kynnir Cardio Bunny