Haustið er tími kvikmyndahátíða! Nemendur, útskrifaðir nemendur og starfsfólk Kvikmyndalistadeildar Listaháskóla Íslands eiga nú sem endranær fjölbreytta aðkomu að tveimur norrænum kvikmyndahátíðum, RIFF og Nordisk Panorama.
RIFF 2026
Í flokknum Íslenskar stuttmyndir verða sýndar þrjár myndir sem urðu til í námi við deildina. Stuttmyndirnar eru Gegnheil eik (Solid Oak) eftir Höskuld Þór Jónsson, fyrrverandi nemanda, Þessi fallegi dagur (This Beautiful Day) eftir Hönnu Huldu Hafþórsdóttur, útskrifaða úr BA-námi, og Vanstillta kanínan eftir Tsjekov (The Disturbed Rabbit by Chekhov) eftir Alvin Huga Ragnarsson, einnig útskrifaðan úr BA-námi. Vanstillta kanínan eftir Tsjekov er unnin í samframleiðslu við lettneska háskólann Latvijas Kultūras akadēmija í Ríga.
Í Flokknum Íslenskar stuttmyndir nemendasamkeppni verða jafnframt sýndar myndir eftir nemendur Kvikmyndalistadeildar. Þær eru Á allra vörum (Talk of the Town) eftir Alexöndru Sól Jónasdóttur, Hekla eftir Jónu Maríu Hjartardóttur og Til hamingju, fáviti! (Congratulations, Asshole!) eftir Orra Guðmundsson. Einnig verður sýnd Heima og Heiman (Swallow Me Home), útskriftarmynd nemenda við Filmakademie Baden-Württemberg, sem er unnin í samframleiðslu við Listaháskóla Íslands.
Starfsfólk deildarinnar tekur einnig þátt í RIFF. Heather Millard, aðjúnkt við deildina, er meðframleiðandi kvikmyndarinnar Brace Your Heart, í leikstjórn Amöndu Kernell og heimildarmyndarinnar Full Steam Ahead í leikstjórn Susan Muska og Grétu Ólafsdóttur. Brace Your Heart kemur á RIFF eftir frumsýningar á kvikmyndahátíðunum í San Sebastián og Toronto, þar sem myndin hlaut Special Jury Award í Platform-keppninni. Heather er einnig framleiðandi stuttmyndarinnar Sundruð (Hold It Together) eftir Fan Sissoko, sem sýnd verður í flokknum Íslenskar stuttmyndir.
Guðrún Elsa Bragadóttir, lektor við deildina, stýrir pallborðsumræðunum í tengslum við sýningu heimildarmyndarinnar Full Steam Ahead: Women, Energy, and Equality. Pallborðið Full Steam Ahead fer fram að lokinni sýningu 26. september kl. 17:05.

Nordisk Panorama
Fulltrúar Kvikmyndalistadeildar taka einnig þátt í Nordisk Panorama, norrænni kvikmyndahátíð sem haldin er árlega í Malmö í Svíþjóð.
Heather Millard er meðframleiðandi tveggja stuttmynda sem sýndar verða á hátíðinni, Sundruð (Hold It Together) eftir Fan Sissoko og Póstkort (Postcards) eftir Freyju Kristinsdóttur.
Jóna Gréta Hilmarsdóttir, útskrifuð úr Kvikmyndalistadeild, tekur jafnframt þátt í verkefninu Kleinur (Donuts) ásamt leikstjóranum Birnu Ketilsdóttur Schram. Þær kynna verkefnið fyrir hönd framleiðslufyrirtækisins Norður.

Þátttaka nemenda, útskrifaðra nemenda og starfsfólks Kvikmyndalistadeildar á alþjóðlegum og norrænum kvikmyndahátíðum endurspeglar fjölbreytta kvikmyndagerð og tengsl deildarinnar við fagið, bæði hér heima og erlendis.
Frekari upplýsingar um RIFF og Nordisk Panorama má finna hér fyrir neðan.
Sjáumst í bíó!






