Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Kvikmyndahátíðin FILMA fór fram í þriðja sinn í Bíó Paradís dagana 26.–28. maí á vegum kvikmyndalistadeildar Listaháskóla Íslands.
Uppselt var á allar fjórar sýningarnar og eins og alltaf fór eftirspurn langt fram úr væntingum. Alls voru sýnd 33 kvikmyndaverk eftir 37 nemendur, auk leiklesturs á handriti útskriftarnema.
FILMA 2026
FILMA er árleg uppskeruhátíð kvikmyndalistadeildarinnar þar sem nemendur kynna afrakstur vetrarins. Hátíðin er unnin í nánu samstarfi við nemendur sem koma að öllum þáttum hennar, allt frá skipulagi og framkvæmd til kynningarmála og sýninga.
Þrjú kvöld í röð fengu áhorfendur að sjá nýjustu verk nemenda á stóra tjaldinu í Bíó Paradís, samtals á fjórum sýningum.
Fyrsta kvöldið var helgað lokaverkefnum 1. árs nema, annað kvöld lokaverkum 2. árs nema og þriðja lokakvöldið tileinkað útskriftarverkum 3. árs nema með tveimur sýningum. Einnig fór fram leiklestur á lokakvöldinu á handriti útskriftarnema í leik og lestri Tinnu Hrafnsdóttur og Gúu Margrétar Bjarnadóttur.


FILMA 2026 fór fram við frábærar móttökur og fjöldi gesta fór langt fram úr væntingum. Salurinn iðaði af lífi og stemningin var einstök öll kvöldin.
Nemendur deildarinnar tóku myndir á fyrri kvöldunum tveimur en ljósmyndarinn Eygló Gísladóttir fangaði stemmninguna á lokasýningunni. Hér að neðan má sjá brot af stemningunni sem skapaðist á meðan á hátíðinni stóð.
Við viljum þakka Bíó Paradís kærlega fyrir vinveitt samstarf og óska nemendum og starfsfólki kvikmyndalistadeildarinnar innilega til hamingju með glæsilega hátíð.
Við endum á orðum Stevens Meyers deildarforseta Kvikmyndalistadeildar:
„In all this work, countless emotions and perspectives are exchanged, creating real moments of connection and understanding, joy and sorrow, hope and fear. We’re immensely proud of our students and thrilled to share their work with you.
Despite uncertainties in the world and in our industry, we can be assured that the future of Icelandic cinema is in good hands“.
Við hlökkum til að sjá ykkur á FILMU 2027!































