Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Inda – stafræn gagnvirk list og hönnun. Nýtt sameiginlegt nám Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík

  • 27.febrúar 2026

Inda- stafræn gagnvirk list og hönnun.

Nýtt sameiginlegt nám Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík þar sem tölvunarfræði og listsköpun eru samtvinnuð í þágu gagnvirkra upplifana.

Inda er grunnnám fyrir fólk með ólíkan bakgrunn sem vill vinna skapandi með tækni og gagnvirka miðlun. Námið sameinar forritun, sköpun og gagnvirkni á einstakan hátt þar sem fjölbreyttar tjáningarleiðir eru þjálfaðar.  Í náminu öðlast nemendur tæknilega færni og fræðilegan grunn til að starfa á breiðu sviði, allt frá stafrænni miðlun og nýjum formgerðum í samtímalist, til leikja- og kvikmyndagerðar.

Inda leggur áherslu á leikgleði, samvinnu, tilraunir og sjálfstæð vinnubrögð, bæði í hugsun og framkvæmd. Námið veitir traustan grunn til áframhaldandi sérhæfingar innan skapandi greina, hönnunar og tækni.

„Það verður spennandi að sjá nemendur skapa verk sem bregðast við fólki og umhverfi, verk sem hlusta, svara og breytast. Þannig verður gagnvirkni að samtali milli manneskju, tækni og efnis.“ – Katrín Ólína Pétursdóttir, deildarforseti hönnunardeildar

„Í Indu er tölvutækni listrænn efniviður sem nemendur geta notað til að miðla og varpa fram nýjum spurningum í heimi sem mótast af hraðri tækniþróun.“ – Þóranna Dögg Björnsdóttir, fagstjóri Indu

Opnað var fyrir umsóknir 24. febrúar og er umsóknarfrestur 13. apríl 2026

Allar nánari upplýsingar er hægt að finna á vefsvæði Inda.